Heimilisritið - 01.02.1944, Qupperneq 52
Bill hristi höfuðið. „Hvorki gott .
né ilit“.
„Getum við Pete nokkuð hjálp-
að?“ spurði hún og gekk að Bill
og lagði höndina á öxl honum.
„Segðu mér, hvað um er að vera,
Bill“.
Bill ætlaði að svara, en orðin
frusu í munni hans. Dyrunum var
hrint upp og Jim Worthington
stóð með skammbyssu í hendinni
í dyragættinni. Á bak við hann
voru nokkrir vígalegir menn.
„Jæja, félagar", sagði Worth-
ington skipandi röddu. ..Umkring-
ið húsið!“
Fylgdarmenn Worthingtons
hlupu af stað og slóu hring um hús-
ið, til þess að vjjrna mönnum út-
göngu. Worthington gekk sjálfur
inn, ásamt þeim grettna. Hann var
skarpleitur og við öllu búinn.
„Hvar er hún, Ludlow? sagði
hann byrstur. „Kallaðu á hana
strax!“
BILL SVARAÐI EKKI. Hann
stóð grafkyrr og óttaðist þá og þeg-
ar, að heyra til Carol við bakdyrn-
ar. Það fór hrollur um hann þegar
hann hugsaði til hennar. Hún var
ein úti í garðinum.
„Heyrðir þú hvað ég sagði,
Ludlow!“ kallaði Worthington. —
„þú færð tvær sekúndur til þess
að vísa á hana“.
Bill Ludlow beit á vör. Hann
hafði ■enn ekkert hej’rt til hennar.
Vel gat vcrið, að hún hefði heyrt
árásarmennina koma og tekizt að
fela sig, áður en þeir urðu hennar
varir. En á það var að vísu ekkert
að treysta.
„Tvær sekúndur?“ lieyrði hann
sjálfan sig segja. ,.Það er allt of
stuttur tími, Worthington. Eg verð
að fá að átta mig á þessum ósköp-
um“. '
Worthington lyfti upp skamm-
byssunni og miðaði beint á hann.
Það var morðæði í svip hans. Bill
sá hann kreista handfangið. Hann
hugsaði: Þá sérð þú þína sæng út
breidda, Bill. En hann gerði ekk-
ert sér ti! varnar. Hann stóð í sömu
sporum, hreyfingarlaus og reyndi
enn að greina hljóð frá bakdyrun-
um, sem gæfi til kynna, að Carol
væri fundin.
WORTHINGTON lét byssuna
síga. „Hún er alltsvo ekki hérna”,
hreytti hann út úr sér. ..Fred. leit-
aðu í húsinu".
'Sá grettni jánkaði og fór inn í
svefnherbergið.
Bill leit til Bobbie ðloore. Hún
stóð eins og stjörfuð. Hún nagaði
á sér varirnar og horfði á eftir
þeim grettna.
„Fyrirgefðu þetta allt, Bobbie,
muldraði Bill. „Mig grunaði ekki
að þetta gæti komið fyrir".
„Næst þegar þú ferð til einka-
spæjara". sagði Worthington, ,.þá
skaltu ganga úr skugga um, að
50
HEIMILISRITIÐ