Heimilisritið - 01.07.1954, Page 7

Heimilisritið - 01.07.1954, Page 7
blaðið og dró út náttborðsskúff- una til að ná í gleraugun mín. En — fremst í skúffunni lá 100 króna seð'illinn vandlega saman brotinn. Eg var lengi úti eftir hádegið og var þyrstur, þegar ég kom heim aftur. Fröken Gunnþóra kom sjálf, þegar ég hringdi bjöll- unni. „A hún frí, stúlkan, sem var hér í morgun?“ spurði ég. „Já, og það langt frí,“ svaraði frökenin. „Eg er búin að reka hana.“ „Hvað er þetta! Gerði hún þá eitthvað af sér?“ „Ja, þvílíkt og annað eins! Daman, sem býr á 649, kom heim þegar stelpan var að taka til þar inni. Hún hefur víst elcki átt von á neinum, 'því að lnin var heldur en ekki með' gest hjá sér.“ „Gest?“ „Já, haldið þér að hún hafi ekki sungið upp kött einhvers staðar, lítinn og ótútlegan kett- lingsskratta. Og hún gerir svo vel og lætur kvikindið liggja í rúminu og var að gæla við það, þegar að var komið. Þessi dama á 649 er afar fín með sig og þar að' auki dauðhrædd við ketti og gerði auðvitað uppistand. Eg var ekki lengi að segja stelpu- fíflinu að hj^pja sig.“ „Þetta var leiðinlegt, fröken Gunnþóra.“ „O, læt ég það vera. Eg hef lengi haft illan bifur á henni. Eg er farin að sjá við þeim, þessum stelpugæsum. — Og ég skal segja yður eitt,“ bætti fröken Gunnþóra við hróð'ug, „þér trúð- uð mér ekki meira en svo í morg- un, þegar ég sagði yður, að hún væri þjófótt. En nú hefur það sannazt áþreifanlega, að þetta var rétt hjá mér.“ „Hún hefur þó ekki farið að stela ofan á allt annað?“ „Ójú, reyndar! Þegar hún fór, notaði hún tækifærið' og stal fallegasta blóminu af skrifstof- unni, eftirlætisrósinni húsbónd- ans.“ Eg stóð við gluggann og horfði niður yfir götuna. Rétt við ber- angurslega og rykuga steinstétt- ina var kræklótt birkihrísla að> reyna að teygja angana upp í kvöldskinið. Hún var þá farin, þessi feimna stúlka með stóru barnsaugun, útrekin úr þessu stóra húsi. Og hér virtist enginn sjá eftir henni. En ég er stundum að hugsa um, hvort grösin og lömbin fyrir vestan muni sakna hennar. Þegar viS grófum stríðsöxina, setti hún ávallt á sig staSinn. (Louise Andries) JÚLÍ, 1954 5

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.