Heimilisritið - 01.07.1954, Qupperneq 46
PENINGAPYNGJURNAR TÍU
Abdul Hamid hafði mikla ágirnd á
efnilegum fola, sem Ali Jósep ættar-
höfðingi átti, og fór því á fund hans
til þess að fala hestefnið.
Abdul hafði ákveðið að borga allt að
iooo gullstykki fyrir folann, en hann
ætlaði auðvitað að reyna að fá hann eins
ódýrt og hægt væri.
Þetta hafði nokkur vandkvæði í för
með sér. Abdul vissi, að ef hann hefði
alit gtillið í einum poka eða kassa og
yrði að opna hann til að greiða um-
samda fjárhæð, myndi ágirnd AIis
vakna, og hann myndi óðara finna ein-
hverja ástæðu til þess að hækka verðið.
Þess vegna gerði Abdul nauðsynlegar
varúðarráðstafanir. Hann deildi þessum
iooo gullstykkjum í tíu pyngjur þann-
ig, að hann gat borgað hvaða upphæð
sem var milli i og iooo án þess að
þurfa að opna allar pyngjurnar. Hvern-
ig skipti hann gullstykkjunum í pyngj-
umar?
HVAÐ ERU ÞAU GÖMUL?
í Eyberg-fjölskyldunni em afi og
amma, faðir og móðir, börnin Jóna og
Jóhann, Pétur frændi og Elín frænka.
Samtals em þau öll 300 ára gömul.
Þegar þeim er skipað niður í tvo
flokka, mcð ömmu, föður, Jónu og
Pétri frænda í öðrum, og afa, móður,
Jóhanni og Elínu frænku í hinum,
verður samanlagður aldur annars flokks-
ins sá sami og í hinum.
Ef raðað er í þessa tvo flokka þann-
ig, að allt kvenfólkið er í öðmm og allir
karlmennirnir eru í hinum, er aldur
fyrri flokksins (kvennanna) 1/8 minni
minni en hins. Samanlagður aldur karl-
mannaflokksins er 1 /7 hærri en kvenna-
flokksins. — Loks er hægt að deila í
aldursárafjölda hvers einstaks með töl-
unni 5.
Hvað eru þau svo gömul, hvert og
eitt?
HVERNIG ER ÞAÐ STAFSETT?
Hér fara á eftir tíu algeng orð, skrif-
uð á tvo vegu. Tvert orð er skrifað bæði
rétt og rangt. Nú er vandinn sá, aS
segja til um, hver eru rétt stafsett.
1. a) táhreinn b) tárhreinn
1. a) tjásulegur b) tásulegur
3. a) tiginborin b) tíginborin
4. a) hvarvetna b) hvarvettna
5. a) mrtildúfa b) túrdildúfa
6. a) tönglast b) tönnlast
7. a) ufs b) ups
8. a) uggla b) ugla
9. a) uppsteytur 10. a) úlnliður b) uppsteitur b) úlfliður
Svor á bls. 55.
44
HEIMILISRITIÐ