Heimilisritið - 01.07.1954, Page 11
„Aðeins örjáar spurningar, ungjrú“ sagði
fuUtrninn.
ÞEGAR fréttist um morðið
á kvikmyndaleikkonunni Maple
Dene, varð allt annað efni að
víkja af forsíðum dagblaðanna.
Hún hafði verio stungin til bana
árla dags í júnímánuði í lúxus-
íbúð sinni á áttundu hæð' í
Courts-byggingunni. í engri
kvikmynd, þar sem i\Ia])le hafði
opinberað fegurð sína, hafði hún
leikið jafn fréttnæmt hlutverk
og nú með dauða sínum.
Hættulegur
leikur
Sakamálasaga
eftir Philip Fromm
r-----------------------^
Hver hafði framið morðið á
hinni fögru filmstjörnu Maple
Dene?
Wainwright lögreglufulltrúi
leysti gátuna á óvæntan hátt
>_____________________:_j
0g það var elcki einungis
dauðdaginn, sem hafði æsandi
áhrif á athygli almennings. Það
var engu síður hinar dramatísku
kringumstæður í sambandi við
morðið. Eftir að baðherbergið
hafði verið rannsakað, var það
nokknrn veginn augljóst, að
morðinginn hafði afklætt sig,
áður en hann framdi glæpinn.
Hann hafði ekki ætlað að eiga
neitt á hættu með' að fá á sig
blóðbletti, er komið gætu upp
um hann.
„Þetta er Ijót saga,“ sagði
Wainwright yfirlögreglufulltrúi
við aðstoðarmann sinn. „Þú ert
útskrifaður úr lögregluskólan-
JÚLÍ, 1954
9