Heimilisritið - 01.07.1954, Blaðsíða 12
um. Hvernig myndir þú fara að
því að finna morðingjann?“
Bob Holroyd tók upp minnis-
bókina sína. „Eg hef skrifað hjá
mér nokkrar athugasemdir. I
fyrsta lagi: Er hægt að' tímasetja
morðið?“
„Já, svona nokkurn veginn.
Þerna hinnav látnu — Elsa
Thrale -— fór úr íbúðinni klukk-
an liálf ellefu. Ilún kom við hjá
húsverðinum í leiðinni. Glæpur-
inn var uppgötvaður klukkan
tuttugu mínútur fyrir eitt, þeg-
ar Elsa kom aftur til þess að
útbúa hádegisverðinn. Cradock
læknir álítur, að hún hafi eklci
dáið seinna en klukkan tólf.“
„Já, einmitt. I öðru lagi: Er
kunnugt um, hvaða fólk hefur
verið í heimsókn í íbúðinni?“
„Nei. Hvað það snertir, er lít-
ið á að byggja. Það eru fimm inn-
göngudyr á Courts-byggingunni.
Eiriár vita út að neðanjarðar-
járnbrautarstöðinni. Lyftunni
stjórna þeir sjálfir, sem nota
hana. Það er auðvelt að komast
upp á áttundu hæð, án þess svo
mikið sem eftir manni sé tekið.“
„Þá er eftir að leita að ástæð-
unni fyrir morðinu.“
„Það er einmitt það, sem við
verðum að gera, Bob. Og það eru
tvær eða þrjár manneskjur, sem
— þótt undarlegt kunni að virð-
ast— hefðu viljað Maple Dene
feiga. Það er íhugunarefni,
finnst þér það ekki?“
Holroyd lyfti brúnum. „Það
kemur sannarlega óvænt. Að
mínu áliti var hún indæl stúlka,
næstum einstök. Það er ekki
lengra síðan en í síðustu viku,
að ég fór með móður minni til
þess að horfa á hana leika í kvik-
myndinni, „Viltar anemonur“,
og ég get ekki annað sagt, en . . .“
„Seinna, Bob, seinna. Reynd-
ar þurfum við ekki að vera að
velta þessu fyrir okkur til eilífs
nóns. . . . Eg veit nú þegar, hver
myrti Maple Dene.“
„Það þykir mér . . .“
„Já, takk,“ sagði Wainwright.
Hann var að tala í símann. „Er
ungfrú Lamb þarna? Gjörið svo
vel að senda hana hingað upp. . .
Það er betra að þú sért nær-
staddur, Bob; kannske lærirðu
eitthvað. Það bíða þrjár mann-
eskjur niðri, hver í sínu her-
bergi. Það er fólk, sem fróðlegt
verður að tala við,“
Linda Lamb, stúlkan, sem lék
aðalhlutverkið í kvikmyndinni
„Hættulegur Ieikur“, var dökk-
hærð í einkalífinu, með óútreikn-
anlega andlitsdrætti. Holroyd
bauð hcnni sæti feimnislega, og
um leið og hún kveikti sér í
10
HEIMILISRITIÐ