Heimilisritið - 01.07.1954, Page 44
eins konar liefð, að' karlmaður-
inn skuli vera sigurvegari — eða
sýnast vera það — og vinna ást-
ir eins margra kvenna og hann
getur. Piltar eru gefnir fyrir að
gorta af sigrum sínum, hvort
heldur þeir eru raunverulegir eða
ímyndaðir. Þetta kemur þeirri
trú inn hjá mörgum drengjum,
að Stúlkur meini ekki „nei“, þó
að þær segi það. Það verður að
sýna þeim það svart á hvítu.
Alla unglinga langar til að
kynnast kynlífinu. Þeir þreifa
sig áfram, unz þeir verða full-
orðnir. Það er mjög eðlilegt, að
þeir freistist til að kynna sér,
hve mikill munur geti verið á
því, hvernig tvær manneskjur
kyssa — eða gera jafnvel fleira.“
Dídí brosti. „Jæja, ég skal
játa, að mig langar til að vita,
hvernig er að daðra og dufla,
en —“ bætti hún við reignings-
lega, „enga stúlku langar til að'
láta hafa að leiksoppi.“
„Rétt,“ sagði ég. „Svo þú
verður að liafa góða gát á því,
hvers konar piltum þú ferð út
með, og ef þú sérð, að þér hefur
skjátlast, að segja þá „nei“, svo
að hann sé viss um að þú meinir
það.
J5n ég held ekki, að dóttir mín
verði laus á kostunum, svo ég
verð enn að vara þig við einu.
Ef þú verður mikið með Jim, eða
einhverjum öðrum góðum pilti,
getur svo farið, að þið verðið
ástfangin. Og þá getur jafnvel
prúður piltur látið ástríðurnar
hlaupa með sig í gönur og kraf-
ist meira, en hann á heimtingu
á. Þá verðurðu að hafa örugga
sjálfstjórn, svo þú getir haft
stjórn á honnm. Gættu þín vel
fyrir ástaratlotum. Þú trúir því
ef til vill ekki nú, en slíkt getur
vakið hjá þér tilfinningar, sem
þú vissir ekki einu sinni, að þú
ættir til. Og ef ykkur skortir
bæði sjálfstjórn —
Aðalatriðið er að forðast tæki-
færi til freistinga. Þú munt læra,
að eftir fyrstu kynnum þínum
af pilti, fer allur ykkar kunning-
skapur. Byrjað'u ekki á ástarat-
lotum! Reyndu heldur að beina
áhuganum að skemmtunum, svo
sem kvikmyndum, leikjum og
félagslífi. Þá verðið þið smám
saman góðir vinir, áður en þið
farið að hugsa um annað og
meira en stutta kveð'jukossa. Ef
þið svo haldið áfram að vera
saman, venjist þið á að skemmta
ykkur, án þess að ástaratlot
verði nokkurt aðalatriði í kunn-
ingskap yklcar. Og ef þið skyld-
uð verða ástfangin, verður það
á heilbrigðum grundvelli gagn-
kvæms skilnings og vináttu.
Ef þú ert ástfangin, langar þig
til að láta það í ljós, en mundu
42
HEIMILISRITIÐ