Heimilisritið - 01.07.1954, Side 36

Heimilisritið - 01.07.1954, Side 36
einu, hversu bálreið ég hafði orð- ið, þegar ég sá mömmu gægja^t svona á ei'tir mér þegar ég var fjórtán ára. Eg minntist líka, hversu ég hafði hatað mömmu fýrir mælgi hennar og ákafa brýnslu um það, að láta piltana ekki snerta mig. „Þeir missa alla virðingu fyrir þér,“ var hún vön að segja, og ég mundi, h\'að ég’ hafði orðið feimin. En fjölskylda mín var gamaldags. Svo gamaldags, að „kynferðismál" voru aldrei nefnd á nafn. Þegar ég var lítil og spurði um það, hvaðan börnin kæmu, var mér sagt, að læknir- inn kæmi með þau i litlu, svörtu töskunni. Eg vissi, að það var ekki satt og spurði ekki framar. Þegar ég var átján ára, fór ég að heiman til að vinna í næstu stórborg, og ég var heppin að kynnast Steve litlu síðar. Fjöl- skylda hans varð fjölskylda mín, og þau voru glaðlegt og hispurs- laust fólk. Þau gengu út frá því •sem vísu, að þegar tvær ungar manneskjur yrðu ástfangnar, vræri bezt fyrir þær að giftast, og það gerðum vrið. Dídí fæddist árið 1939. Ég ásetti mér þá, að ég skyldi ala hana betur upp að þessu leyti, en mamma hafði alið mig upp. Ég vikli, að Dídí kynntist öllu, sem ég gæti frætt hana um kyn- ferðismál, jafnskjótt og hún yrði nógu gömul til að skilja það. Eg kærði mig ekki um, að luin kynntist því hjá öðrum telpum, af klúrum sögum eða fávísum drengjum. Eg vildi ekki, að hún ælist upp við sams lconar óttatil- finningu og ég hafði ætíð borið til móður minnar. Svo ég las allar bækur og hlustaði á alls konar ráðlegging- ar. Frá því fyrsta leitaðist ég við að svara öllum spurningum Dídí eins greinilega og ég gat. Frá því hún lærði að tala, kunni hún réttu orðin og smám saman lærði hún að skilja starfsemi lík- ama síns. Eg reyndi að útskýra fyrir henni, þegar hún spurði mig, „Hvað gera feður?“, mis- muninn á karli og konu í eins einföldum orðum og ég gat. ðleðan hún var heima eða á barnaheimili, gekk allt vel. Fyrstu vandkvæðin bar að, þég- ar lnin var tíu ára og við dvöld- um nokkra mánuði í sumarbú- stað við vatnið. Það bjó óviðfelldin kona skammt frá, og hún átti dóttur á aldur við Dídí, og svo vissi ég ekki fyrr en eitt kvöldið, að Dídí kom hágrátandi heim. Að lokum tókst henni að stynja upp, hvað væri að. Hún hafði verið rekin heim, af því „hún væri dónaleg stelpa.“ 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.