Heimilisritið - 01.07.1954, Page 45

Heimilisritið - 01.07.1954, Page 45
að sönn ást er einlæg og ósín- gjöm. Ef ytri ástaratlot eru mis- notuð af ásettu ráði í tiírauna- skyni til að valda spenningi, þá eru þau fölsk og óeinlæg, og mannskemmandi.“ „Eg held ég skilji þetta,“ sagði Dídí. „En því vilja ekki allar stúlkur vei’ða eins og þú vilt, að ég verð'i? Af hverju fara fjórar eða fimm stelpur í skólanum út með hvaða strák, sem biður þær, til að kela við hann?“ „Eg geri ráð fyrir, að hinir unglingarnir kalli þær lauslátar,“ sagði ég. „Og þú mátt vita, að þær vita það sjálfar. Og heldurðu að þær myndu ekki gjarnan vilja vera vinsælar af einhverjum öðr- um ástæðum, ef þær gætu? Svo- nefndar vandræðastelur eru það ■venjulega, af því þær eru óham- ingjusamar. Ef til vill er eitt- livað að heimilislífinu hjá þeiin. Þær eru oft í örvæntingarfullri leit að ástúð, sem þeim hefur aldrei verið veitt.“ Það varð löng þögn. Svo sagði Dídí: „Eg er fegin, að þú skulir vera manuna mín. Eg er fegin, að okkur kemur öllum svona vel saman, og þú segir mér þetta allt.“ Hjarta mitt fylltist þakklæti, og ég sagði: „Eg er líka fegin að eiga svona góða og fallega dótt- ur, og ég vona að við verðum alltaf vinir, sem hjálpum hvorri annarri í hvaða vanda, sem að höndum ber.“ „Já, niannna," sagði Dídí, og þar með endaði samtal okkar. Við tökum það upp seinna, þegar ný tilefni gefast. Uppeldi er áframhaldandi braut, bæði fyrir barnið og foreldrið. En við dóttir mín getum talað saman hispurslaust. Og það er mest um vert! * „Hef ég nokkurn tíma sagt þér frá honum afa mínum? Ilann var mannæta!!!“ JÚLÍ, 1954 43

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.