Heimilisritið - 01.07.1954, Blaðsíða 48

Heimilisritið - 01.07.1954, Blaðsíða 48
siglið' og sagði merkilegar sögur um heitar uppsprettur á fjar- lægum suðurhafseyjum, þar sem hægt var að fá tuttugu banana fyrir pennyið, og af því, þegar hann háði einvígið við Prússa í Ivaíró. Heimsmaður, kurteisin uppmáluð, kvennagull — í stuttu máli sagt, Cosmo frændi var geysilega hrífandi maður. _Sá eini, sem ekki lét hrífast af Cosmo frænda, var hinn frænd- inn, Silas. — Þú hefur nú flækzt úr ein- um staðnum í annan, átti hann til að segja, en ekki er það' svo- sem neitt, sem þú hefur afrekað. — Ekki það? Ég hef ferðast um hálfan hnöttinn, Silas, á meðan þú hefur húkt hér og ræktað verðlaunuð stikilsber. — Að vísu, mælti Silas, að vísu. En maður hefur nú engan annan til frásagnar um allt þetta en sjálfan þig. Þrátt fyrir allar 'þær upplýsingar, gætirðu alveg eins hafa búið á matsölu í Brigh- ton allan liðlangan veturinn. — Silas, svaraði Cosmo frændi, ég gæti sagt þér sögur frá ýmsuin stöðum alveg héðan og til Adelaide, sem myndu koma þér til að spýta galli. Ymsum stöðum, sem . . . — Nú, segðu þær þá! Það er enginn að banna þér það. — Hlustað'u þá á. Hér er til 46 dæmis ein. í Assyríu er eyði- mörk, þar sem enginn maður hefur nokkru sinni stigið fæti, og svo löng leið er yfir hana þvera, að það myndi taka þrjú ár að ríða þá leið á úlfalda. Dag nolckurn . . . — Hefur þú þá aldrei farið um þessa eyðimörk? — Nei, en . . . — Andskotann ætli þú vitir þá, hvort það' tekur þrjú ár? — Jú, það er . .. — Þarna sér maður, mælti Silas. Hvað sagði ég ekki! Þú heyrir talað um þetta, Cosmo, þú heyrir öll ósköp, og þú hefur víða verið, en þú hefur aldrei framkvæmt nokkurn skapaðan hlut. Talaðu heldur eitthvað' um kveníolkið. — Það var og! — Hvað á rnaður að segja uni þessa ástmey þína í Niee? — Eg á enga ástmey í Nice! — Þarna kemur það aftur. Stendur heima. Eintóm stóryrði, en ekkert framtak. — Hún er í Monte Carlo! — Nú, það er þá ekki'merki- legra en það. Cosmo frændi varp öndinni þunglega, móðgaður í mikillæti sínu, saup gúlsopa af víni Silas frærida með sams konar svip og hann gleypti rottueitur, slakaði síðan á munnvikjunum aftur og HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.