Heimilisritið - 01.07.1954, Page 51

Heimilisritið - 01.07.1954, Page 51
sig. Þá segi ég: — ég gríp tæki- færið, og síðan fórum við upp í höllina, og hún tók þegar í stað til við að mála. — Öll fjölskyld- an er farin að heiman og verð'ur vetrarlangt burtu, og ég er hér öldungis ein, aðeins með þjón og ökumann, sagði hún. — Héðan í frá komið þér á hverjum degi, veiðið ála, og síðan komið þér upp í höllina og látið mig mála yð'ur. Og Silas frændi hélt áfram sögu sinni, milli rammra vínsop- anna, um það, hvernig hann gerði það, sem hún hafði beðið hann um, í heila viku, veitt ál snemma morguns, síðan gengið upp í höllina, læðzt inn um bak- dyr og látið stúlkuna mála mynd af sér uppi í herberginu hennar. Allt þar til dálítið kom fyrir. Það var dembirigning heilan dag og næstu nótt, og þegar hann kom niður að ánni morguninn eftir, hafði hlaupið vöxtur í hana, og léleg steinbrúin, sem lá að' höllinni, hafði sópazt burt í flóðinu. Það leiddi af sér, að ganga varð sex mílna krók, og klukkan var nærri átta, þegar hann kom að’ höllinni. Hann skauzt inn um bakdyrnar og gekk upp í herbergið hennar, og þar stóð þá stúlkan fyrir fram- an spegil og málaði mynd af sjálfri sér nakinni. — Og var þá allt búið? spurði Cosmo. — Nei, Cosmo, þá fyrst byrj- aði það. — Jæja, anzaði Cosmo, hvað gerði hún þá? — Merkilegan hlut, Cosmo, mælti Silas frændi, merkilegan lilut. Hún hélt bara áfram með myndina af sjálfri sér. Líkar þér hún? Jæja, ég stóð þarna þann- ig, að ég sá hana sjálfa aftan frá,. myndina á lilið, en framanverða í speglinum, og nú féll ég sann- arlega í stafi. — Þér líkar hún kannske ekki vegna þess að hún er ekki fullgerð? sagði stúlkan.. Nú klæði ég mig, við étum steiktan ál, og síðan segirðu mér,. hvað þér finnst um hana. Því næst sagði Silas frá því,. hversu þau átu steikta álinn og röbbuðu um myndina, og að hann hefði haft orð á því, að hann væri ekki dómbær um mál- verkið eftir svo stutta viðkynn- ingu við fyrirmyndina. — Við sjáumst aftur á morg- un, mælti hún, og þannig héldu þau áfram, hún að mála sjálfa sig nakta, Silas að horfa á, þang- að til, eftir því sem Silas sagði,. að mánuður var liðinn og hann hafði veitt svo til hvern einasta ál í fljótinu. — Þú manst, að ég sagði að hún hefði verið köld, mælti JÚLÍ. 1954 49)

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.