Heimilisritið - 01.07.1954, Page 58
Danslagatextar
Haukur Morthens valdi
EITT FÁTÆKT LJÓÐ
VIÐ LÍTIÐ LAG
Lag: Þórhallur Stefánsson.
Texti: Ornólfur 1 Vík.
Eitt fátækt ljóð við lítið lag
mér líður seint úr minni.
Það fæclclist sumarfagran dag
við fyrstu okkar kynni.
Og Ijóðið það var ljúft og milt
um litla stúlku og ungan pilt,
er höfðu saman hjörtun stillt
á heillabrautu sinni.
Og ljóðið mitt við lagið þitt
fær líf í höndum þínum.
Það hefur rnarga stund mér stytt
og stefnir huga mínum
að öllu því, sem áður var,
er okkar fundum saman bar.
Það geymjr mætar minningar
í munarómi sínum.
Ó, láttu litla ljóðið mitt
sem lengst í hug þér búa
og litla þýða lagið þitt
með líknsemd að því hlúa.
Því ljóðið það er Ijúft og milt
,um litla stúlku og ungan pilt,
sem höfðu saman hjörtun stillt
og hvert á annað trúa.
í FAÐMI DALSINS
Lag: Bjarni J. Gislason.
Texti: GuÓmundur Þórðarson.
Fögur voru fjöllin hér,
fram í dalnum léku sér
marga æskuunaðsstund
yngissveinn og fögur sprund.
Hlupu frjáls um holt og mó,
höfðu í blómalautum skjól,
bundu kransa, brostu, eins
og blóm við sól.
Bjartir lokkar léku í
Ijósi sólar dægrin löng.
Þá var ástin ljóðrænt lag,
er lífið söng
Fegurð enn á fjöllum býr,
— faðmur dalsins grænn og hlýr.
Sveinar enn þar fara á fund
við fögur sprund.
56
HEIMILISRITIÐ