Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 6

Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 6
at hafði getið þess, að Satima væri nýlega komin heim eftir langa dvöl hjá einhverjum ætt- ingjum. Eödd manns hennar náði eyr- um hennar sem fjarlægur þyt- ur, áður en hún hneig meðvit- undarlaus til jarðar. Þegar hún vaknaði, lá hún í rúmi sínu og Jim horfði á hana, órólegur og óttasleginn. Það var langt liðið nætur. Allir voru gengnir til náða og sváfu þung- um svefni eftir hina miklu át- veizlu. Aðeins Satima ein sat ennþá undir kókóspálmanum, við dvínandi bálið og hugsaði um það, með hvaða töfrum hún gæti vakið ástir hvíta „túwans“ að nýju. Þá barst veikt hvæs að eyrum hennar og úr hænsnahús- inu heyrðist garg og f jaðraþytur. Allt benti til þess, að slanga hefði skriðið þangað inn. Satima spratt á fætur, þreif lampann, sem enn hékk á svöl- unum, greip þungan lurk og flýtti sér að hænsnahúsinu. Slangan varð hennar ekki vör, því hún var í ákafa að sjúga blóðið úr einni hænunni, og Sat- ima lyfti bareflinu á loft og sló eins fast og hún gat. Nokkrir krampadrættir fóru um slönguna, en svo lá hún hreyfingarlaus. Hrygguri'nn var mölbrotinn. Satima stóð um stund hreyf- ingarlaus og starði á slönguna. Það var svört kobraslanga. Og þá vissi hún, að hin hvíta „mem“ (frú) átti að deyja. Það var vilji Allahs. Hafði hann ekki einmitt á hinum mikla hátíðis- degi bent henni á ráð sem dugði? Kobraslöngurnar eru alltaf tvær saman og fara sjald- an langt hvor frá annarri. Mak- inn kemur jafnan stuttu á eftir, rekjandi spor hinnar, og vei hverjum þeim, sem dvelur í nánd við dauða kobraslöngu, þegar maki hennar kemur að líkinu. Satima greip slönguna og dró hana upp í garð húsbænda sinna og fast að hengirúminu, sem Jim hafði fest á milli greina hins stóra regntrés. Bak við hengi- rúmið var þétt hrísgerði, með stórum, rauðum blómum, og í skjóli þess ætlaði hún að bíða á morgun og njóta þess að sjá skelfingu hvítu konunnar, þegar hún uppgötvaði hina svörtu ko- braslöngu og sæi hana skríða niður til sín. Satima festi slönguna í grein- um trésins, þar sem hengirúmið var bundið. Síðan dró hún sig hljóðlega í felur og gladdist af tilhugsuninni um grimmilega hefnd. 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.