Heimilisritið - 01.07.1955, Qupperneq 28
Ein af hinum ágætu
sögutn um lögreglu-
manninn
Francis Quarles —
Beiskar
möndlur
eftir
Julian Symons
StúU^an, sem afgreiddi Vi5 barinn, bauð Franklin
eitt glas af appelsín.
MICHAEL Franklin, sem var
leikari, en næstum eins kunnur
fyrir ónotalega framkomu og
skaplyndi og hin miklu afrek
sín á leiksviðinu, leit yfir á-
heyrendaskarann, brosti ólund-
arlega og fékk sér sopa úr vatns-
glasi, sem stóð á borðinu við hlið
hans:
— Það versta, sem ég veit í
þessum heimi, er að halda ræður,
sagði hann, og áheyrendur hlógu
og bjuggust við meira af svo
góðu.
Hann hélt áfram:
— Og ef það er einn staður í
heiminum, sem ég þoli ekki, þá
er það þessi leiðindabær Dembry
í drepleiðinlegasta hluta Norð-
ur-Englands. Ég hef orðið fyrir
þeirri ógæfu að ala barnsaldur
minn hér, og það veldur mér
sárum vonbrigðum að sjá hér
meðal áheyrenda ýmsar þær
manneskjur enn á lífi, sem ég
gat ekki með nokkru móti þol-
að á barnsaldri.
Hann tók sér málhvíld og
snýtti sér. Að þessu sinni bar
ekki á neinni hrifningu í undir-
tektum áheyrenda.
Hinn ungi einkaritari Frank-
lins, Desmond Carr, mjakaði sér
vandræðalega í sætinu og það
var eins og honum liði mjög illa.
Uppi á sviðinu stóð húsbóndi
hans og hallaði aftur höfðinu og
vaggaði sér fram og til baka og
hæðnisbros lék um varir hans er
hann leit á gamla fólkið úr fínu
26
HEIMILISRITIÐ