Heimilisritið - 01.07.1955, Side 59
Framhaldssaga eftir
RUTH FLEMING
Nýi
herrctgarðs-
eigandinn
FORSAGA
Bruce Kinlock hefur erft herra-
garðinn Kinlock Hall við andlát Sir
Hamish, sem var fjarskyldur ætt-
ingi hans. Hann er nú fluttur á
herragarðinn, ásamt móður sinni, og
hefur ráðið Lindu, dóttur Sir Ham-
ish, sem ritara sinn. Nágranni þeirra
Maurice Carnforth, blendinn maður,
sem á auðuga foreldra og er æsku-
félagi Lindu. Hann og móðir hans
eru nú í heimsókn á Kinlock Hall.
Hún fór að rabba um sitt af
hverju frá liðnum dögum og lét
móðann mása þangað til Andrew
opnaði dyrnar og tilkynnti að
frú Taggart væri komin.
Svo var farið að drekka te, og
frúrnar þrjár tóku að ræða sam-
an. Aðeins Linda og Maurice
tóku ekki þátt í samræðunum,
og ungu stúlkunni leið ekki
meira en svo vel í nærveru hans.
Hann hafði móðgað hana á gróf-
asta hátt síðast liðið haust, en
nú hegðaði hann sér eins og
hann hefði gleymt þeim atburði
gersamlega, og það gramdist
henni.
Henni létti, þegar hann og
móðir hans fóru loksins, og strax
þegar það var tímabært, afsak-
aði hún sig með annríki og dró
sig í hlé. Frú Taggart sat góða
stund lengur, og þegar hún var
orðin ein með frú Kinlock, sagðL
hún:
„Maurice Kinlock er fríður og
myndarlegur maður, það er
merkilegt að ekki skyldi neitt
verða milli Lindu og hans. Flest-
ir hérna héldu að þau væru að
draga sig saman.“
„Virkilega?“ sagði frú Kinlock
og laut áhugasöm fram í stóln-
um. „Hvernig var því eiginlega
varið?“
JÚLÍ, 1955
5T