Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 14
Annar þeirra gaf kaupmann-
inum bendingu um að afgreiða
hana, og hann færði sig nær
henni og spurði hvað hún vildi.
Hún talaði hærri röddu en hún
átti vanda til, og orð hennar
heyrðust um alla verzlunina. „—
og súpukraft. Og ■— ó, já — einn
pakka af sígarettupappír.“
Kaupmaðurinn hló. Hann
greip tækifærið til að gera að
gamni sínu. „Þér eruð þó ekki
farnar að vefja yður sígarettur,
frú Collins?“
„Nei, auðvitað ekki,“ svaraði
hún þóttalega.
Brosið hvarf af vörum hans og
yfir andlit hans færðist undrun-
arsvipur. „Það var skrýtið, ég
man ekki til að herra Davis
reykti heldur. Ég hef aldrei
heyrt því fleygt. Ég hef alltaf
haldið að hann væri fullkominn
bindindismaður —“
„Hann er það,“ sagði hún hárri
og skærri röddu. „Hann reykir
aldrei.“
Kaupmaðurinn klóraði sér í
hnakkanum. „En úr því að þið
reykið / nú hvorugt — hver er
það þá, sem reykir hjá yður?
Hafið þér gest?“
Hún svaraði því engu. Það var
ekki nauðsynlegt. Hún sneri sér
við og horfði festulega á menn-
ina tvo, sem stóðu utar við búð-
arborðið. Þeir höfðu hlerað eftir
hverju orði og nú mættu þeir
talandi augnaráði hennar.
Allt í einu tóku þeir viðbragð
og snöruðust fram hjá henni út
á götuna. Hún heyrði 1 lögreglu-
flautu í fjarska meðan hún beið
eftir að kaupmaðurinn pakkaði
inn vörunum. Hún heyrði þungt
fótatak hlaupandi manna fyrir
utan, en hún sneri sér ekki við
til að aðgæta hvað um væri að
vera.
Þegar hún fór út úr verzlun-
inni tveim mínútum síðar var
lögð þung hönd á öxl hennar.
Annar mannanna, sem verið
höfðu inni í verzluninni, stóð
þar og beið hennar. „Þér ættuð
að bíða hér þangað til því er
lokið,“ sagði hann. „Þér ættuð
ekki að fara þangað strax. Þér
gætuð orðið fyrir skoti, frú
Collins.“ Hann virtist vita hver
hún var og hvar hún átti heima.
Hún svaraði engu. Hann hlaut
að vera lögreglumaður, og hún
hafði svarið þess dýran eið að
ávarpa engan á leiðinni til húss-
ins. Loforð var loforð. Mismun-
urinn á glæpamanni og heiðar-
legum manni var sá, að hinn
síðar nefndi hélt loforð sitt, jafn-
vel þótt það væri gefið glæpa-
manni.
Lögreglumaðurinn kallaði á
kaupmanninn og bað hann fyrir
hana. „Hafðu hana hjá þér
12
HEIMILISRITIÐ