Heimilisritið - 01.07.1955, Side 35
Stúlkur
í veiðihug
Florence Jane
Soman
skrifar hér
skemmtilega
sumarleyfissögu,
sem líka mætti kalla
veiðisögu
SUSAN PAINE var hæggerð
og stillt stúlka og fólk tók ekki
eftir því, hve hún var aðlaðandi,
fyrr en' það hafði kynnzt henni
vel. Hún var þessu vön og lét
það ekki á sig fá. En Bet, nán-
asta vinkona hennar, sem einn-
ig var 19 ára, var alltaf að ergja
sig yfir því hvað Susan væri hlé-
dræg.
Bett átti mjög auðvelt með að
draga ungu mennina að sér í
hópum enda þótt hún væri ekk-
ert sérlega falleg. Hún var allt-
af í góðu skapi og hafði mjög
yndislega framkomu og bar með
sér líf og gleði, hvar sem hún
fór.
Nú ætluðu þær vinkonurnar
saman í sumarleyfi í fyrsta
skipti og þær höfðu ákveðið að
dvelja á sumarhóteli, sem aug-
lýsti baðströnd, tennisvelli og
golfvöll og var sérstaklega ætl-
að ungu fólki.
— Við megum nú ekki halda
að staðurinn sé eins góður, og
segir í auglýsingunni, sagði Bett,
en ég talaði nýlega við stúlku,
sem var þar fyrir tveimur árum
JÚLÍ, 1955
33: