Heimilisritið - 01.07.1955, Qupperneq 13

Heimilisritið - 01.07.1955, Qupperneq 13
sígarettupappír, annars verð ég vitlaus. Farðu út í verzlunina og gerðu innkaup eins og þú ert vön. Segðu að leigjandann vanti sígarettupappír, svo að þá gruni ekki neitt.“ Hún hafði beðið eftir þessu lengi. Hún gekk hægt í átt til dyranna, og hún reyndi að leyna ákefð sinni. Allt í einu féll þung hönd hans á öxl hennar. „Bíddu við.“ Hann kipraði saman hvarmana. „Hvemig get ég vitað að þú svíkir mig ekki? Þú varaðir mig við að koma aftur —“ Hún leyndi geðshræringu sinni. Allt í einu virtist honum detta ráð í hug. „Nú veit ég hvað ég geri. Sæktu bænabókina, sem þú geymir í herberginu þínu.“ Hún sótti bókina. Hann hrifsaði hana til sín. „Leggðu nú höndina á bókina og sverðu við guðs nafn að þú skul- ir ekki koma upp um mig þótt ég sleppi þér út. Þú ferð beina leið í verzlunina og gerir inn- kaupin og kemur svo beina leið hingað aftur án þess að ávarpa neinn!“ Hún fann hverig ískaldur ótt- inn greip hjarta hennar. Hann kreppti hnefann og reiddi hann framan í hana. „Sverðu nú!“ skipaði hann. Hún lagði höndina á bókina og horfði beint í augu hans. „Ég sver, að ég skal ekki minnast á það við nokkum mann að þú sért hér. Ég geri bara innkaupin og kem beint hingað aftur.“ „Þetta er nóg.“ Hann ýtti bók- inni til hliðar. „Ég þekki þig. Þú þorir ekki að sverja rangan eið.“ Hún fikraði sig nær dyrunum, og beið. Hann kom á eftir henni og ýtti lokunni frá, með skamm- byssuna á lofti. Hún fór út á tröppumar og hann lokaði dyr- unum að baki hennar. Hú gekk hægt um götuna með rápskjóðuna dinglandi í hend- inni, alveg eins og hún var vön. Hún sveigði fyrir hornið og var um leið í hvarfi frá húsinu, en þó greikkaði hún ekki sporið. Hún gekk rólega inn í verzlun- ina. Tveir menn stóðu við búðar- borðið á tali við kaupmanninn. Þeir voru ekki að verzla neitt, þeir stóðu þarna og töluðu í lág- um hljóðum við kaupmanninn eins og þeir væru að spyrja hann einhvers. Hún hafði aldrei séð þá áður. Þeir voru ekki í einkennisbúningum, en það var eitthvað rannsakandi og kalt við augnaráð þeirra, og þeir minntu hana ósjálfrátt á lög- regluþjóna. JÚLÍ, 1955 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.