Heimilisritið - 01.07.1955, Page 11

Heimilisritið - 01.07.1955, Page 11
kjallaranum, lá þar stirður og kaldur. Dyrnar stóðu í hálfa gátt að baki hennar. Það hafði tekið hana langan tíma að opna þær þannig að ekki ískraði í hjörun- um, að þær opnuðust fullkom- lega hljóðlaust. Langar, spenn- andi mínútur hafði hún notað til að þoka hurðinni um eina spönn, síðan hvílt sig. Þá byrj- að á nýjan leik. En hún hafði nægan tíma. Og nú skreið hún á fjórum fótum eftir ganginum, þokaðist hljóðlaust fram eins og snákur, í átt til forstofudyr- anna, sem hún grillti aðeins í húminu. Hún heyrði þungan andar- drátt hans, og hann leiðbeindi henni. Hann lá endilangur rétt við dymar, eins og lifandi slag- brandur, og lokaði henni leiðinni út og varði öllum óviðkomandi inngöngu. I>að var sársaukafullt að skríða þannig á gólfinu, hana verkjaði í knén, en hún lét það ekki á sig fá. Það skrjáfaði í klæðum hennar, og hún dokaði við til að vera viss um að hann hefði einskis orðið var, og hélt síðan áfram. Hún þokaðist nær og nær. Hún var nú komin þétt að hon- um. Hann hafði vöðlað jakkan- um sínum undir höfuð sér og not- aði hann fyrir svæfil. Það glitti á hvítar skyrtuermar hans í rökkrinu. Nú komst hún ekki nær hon- um án þess að snerta hann. Augu hennar voru farin að venjast myrkrinu og hún sá hann nú miklu greinilegar. Dagskíman var lí'ka farin að þrengja sér inn í ganginn. Hann hélt á skammbyssunni í sofandi hendi. Hlaupið beindist að dyrunum, viðbúið að spúa eldi og blýi af minnsta tilefni. Hann gat hleypt af áður en hann opn- aði augun. Hún hefði ekki getað náð byssunni úr hendi hans þótt hún hefði reynt, en það var ekki ætlun hennar. Hún hafði ekki skriðið hingað til þess. Hún hafði aldrei haldið á byssu, hún vissi ekki hvernig átti að nota slíkt vopn, og hann hefði strax tekið það af henni aftur. Hún leitaði allt í kringum hann, með nefið niðri við nakt- ar gólffjalimar. Það var hvítur, sívalur stubbur rétt hjá honum. Það var vindlingurinn, sem hann hafði reykt áður en hann lagðist til svefns. Hún lét hann liggja. Þá sá hún það, sem hún leit- aði að. Það var fyrir innan hann, í mjórri raufinni, sem varð milli hans og hurðarinnar. Lítill, flat- ur pakki eða umslag, með hvíta pappírsræmu undir hálfopnu JÚLÍ, 1955 9

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.