Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 40

Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 40
verður þú nú að ákveða sjálfur. Ég á við . . . En hann var staðinn upp og geispaði aftur. — Mig langar reyndar ekkert til þess, sagði hann, en það er víst bezt að nota tækifærið úr því maður er kom- inn á svona fínan stað. Bless á meðan, Sue. Hún brosti vandræðalega. — Bless, sagði hún. Hún stóð kyrr og horfði á eftir honum og var vonleysið uppmálað. Hvað er eiginlega að mér? hugsaði hún. Hvers vegna missi ég málið í hvert skipti, sem ég sé hann? Ef það hefði verið Bett, sem hitti hann þarna við lystihúsið, hefði hann aldrei gengið í burtu á þennan hátt — bara til þess að leika tennis. Bett myndi koma honum til að hlæja. Hún hefði gert hann svo áhugasaman, að hann hefði viljað vera með henni það sem eftir var dagsins. Susan sneri sér við og gekk í burtu. Hún var álút og hafði hendur í vösum. Það var kominn nýr gestur á hótelið. Hún hét Iris og var mjög vel vaxin, hafði mjög glaðleg augu og dökkt hár. Bett kallaði hana „Lótusblómið“ og sagði að hún væri alltof tilgerðarleg, en Susan fann enga huggun í því. Ástæðan var sú, að Mike og Iris fundu hvort annað strax, og: þau voru alltaf saman, Mike hallaði sér að Iris og bæði brostu og virtust mjög ástfangin. Sus- an reyndi eftir megni að forðast að vera með unga fólkinu og bar harm sinn í hljóði. Hún var ein útaf fyrir sig, fór í gönguferðir og lét sig dreyma. Hún var allt- af að hugsa um það, hvernig hún ætti að vekja athygli hans á sér, því að hún var viss um að þau myndu geta skemmt sér vel sam- an og ættu margt sameiginlegt. Það var síðasta kvöldið — bjart og fallegt sumarkvöld, alltof fallegt til þess að sitja inni í reykfullum danssalnum, hugs- aði Susan. Hún stóð upp frá borðinu og gekk út á auðar sval- irnar og settist þar í stól. Hún var í fremur leiðu skapi og aug- un fylltust af tárum þegar hún renndi huganum yfir sumarleyf- isdagana, sem hefðu getað orðið svo skemmtilegir, en urðu ekk- ert nema vonbrigðin. Hún heyrði fótatak á svölun- um og leit upp. Hún hrökk í kút. Þetta var Mike og hann gekk beint til hennar eins og hann hefði elt hana út. — Sue, sagði hann. — Má ég setjast hjá þér? Hún dró djúpt andann. — Já, gerðu svo vel, sagði hún. 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.