Heimilisritið - 01.07.1955, Page 42

Heimilisritið - 01.07.1955, Page 42
kvaddi mig, rétt 'eins og við hefðum verið í einhverjum hjól- reiðatúr á sunnudegi, og ég sem er búin að sóa öllu sumarleyfinu mínu í hann. Hún hristi höfuðið sorgmædd. — Svona eru þeir allir. Ég hitti Iris í fatageymslunni og hún sagði mér að Mike hefði ekki einu sinni beðið um símanúmer- ið hennar. Og hún, sem er búin að reyna í heila viku að ná hon- um á löpp. Þetta er ekkj hægt. Hún leit upp. — Hvað er eig- inlega að þér? Þú ert orðin gjör- breytt. Susan stóð við gluggann í leiðslu. Hún var innilega glöð. — Ég hef verið með Mike, sagði hún. Við erum búin að vera sam- an í marga klukkutíma og við erum búin að tala og tala. Ég ætla að hitta hann, þegar við komum aftur til Leads. Ég hitti hann á miðvikudagskvöldið. Bett glápti á hana með opinn munninn. — Nei, sagði hún — Ég trúi þessu ekki. Hún dæsti og sagði síðan: — En þú gerðir ekkert! — Nei, ég veit það, hvíslaði Susan. —Er það ekki ótrúlegt? * Reykingar bannaðar Safnvörðurinn ávarpaði miljónamæringinn. „Reykingar eru bannaðar hér, herra,“ sagði hann. „Við því er tíu shillinga sekt.“ „Jæja, héma er pundsseðill," svaraði sökudólgurinn. „Ég get ekki skipt, herra,“ sagði vörðurinn. Miljónamæringurinn sneri sér að ritara sínum og rétti honum vindil. „Héma, Jón, reykið þér líka.“ Þjófurinn gekk í gildruna Innbrotsþjófur fór inn í hús og sá svohljóðandi tilkynningu á pen- ingaskápnum: „Eyðið ekki sprengiefni, skápurinn er opinn — snúið bara handfanginu." Hann gerði það. Stofan var böðuð í ljósi, bjalla hringdi hátt. Þegar hann var fluttur í fangelsið, sagði hann: „Tráust mitt á mönnunum hefur orðið fyrir þungu áfalli." 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.