Heimilisritið - 01.07.1955, Page 57

Heimilisritið - 01.07.1955, Page 57
Hún sá í speglinum, að ein- hver hafði gleymt veskinu sínu. Það lá í gluggakistunni. Hún sneri sér við og teygði sig eftir veskinu. Hún var þó ekki svo vitlaus að taka það. Nei, æfðir fingur hennar köf- uðu niður í veskið og rótuðu inn- an um púðurdósir og varalit. Loksins fann hún eitthvað, sem líktist peningaveski. Þetta var leðurveski með mynd af ung- um manni. Connie rak tunguna framan í hann áður en hún henti honum af tur niður 1 veskið. Þarna kom loksins peningabuddan. Þetta var ein af þessum góðu gamaldags buddum, sem allir þekkja. Hún greip þegar í stað fjóra pundsseðla, sem lágu í henni. Ekki svo slæm byrjun á mánudegi, hugsaði hún með sjálfri sér. En hún komst fljótt á aðra skoðun. — Hver fjárans, andskotans vandræði, bölvaði hún og leit á græna fingur sína, hvers vegna gætti ég mín ekki betur? . . . Þú ert asni, Connie — þú átt eigin- lega skilið að verða tekin fyrir þetta. En Connie Hedge, öðru nafni Hoggs, Higgs og Huggins, var ekki þannig gerð, að hún tapaði sér álveg þótt eitthvað gengi á móti. Þetta gamla bragð var allt- of vitlaust til þess að hún ætti að falla fyrir því, jafn gömul og hún var orðin í faginu. Hún greip kápuna sína í skyndi og fór í hana um leið og hún hljóp út í gegn um veitinga- stofuna. Rétt við útidyrnar hafði hún næstum hlaupið fröken Meldicott um koll. — Mér líður fremur illa í dag, fröken Meldicott, hrópaði hún á hlaupunum — ég hef verið slöpp síðan í morgun. Ég neyðist til að fara heim. Þetta var það, sem fröken Meldicott hafði beðið eftir all- an daginn, en nú kom þetta svo snögglega fyrir, að hún vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Og áður en hún vissi hvað ætti til bragðs að taka var Connie komin út um dyrnar. Loksins náði fröken Meldicott stjórn á sér og þaut sjálf út um dymar nógu snemma tl þess að sjá Connie hoppa upp í strætis- vagn. — Stöðvið þjófinn, hrópaði hún örvilnuð, — stöðvið þessa stelpuskjátu- En enginn heyrði til hennar. Hávaðinn af umferðinni var svo mikill og götusalarnir hrópuðu svo hátt, að hin mjóróma rödd þessarar gömlu piparmeyjar JÚLÍ, 1955 55

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.