Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 4

Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Kynningarverð í september Hágæða útiljós frá Svíþjóð 25 ára ábyrgð gegn ryði og tæringu Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is 25 ára ábyrgð gegn ryði og tæringu KYNNINGAR VERÐ 14.900 KYNNINGAR VERÐ 8.500 Leit að ofurfyrirsætu í Smáralind veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Áberandi kaLt, rigning norðan- og norðauStanLandS, en LéttSkýjað SunnantiL HöfuðborgarSvæðið: Léttskýjað og svöL norðangjóLa. Hægur vindur og aðgerðarLítið veður. Áfram fremur SvaLt með næturfroSti. HöfuðborgarSvæðið: sóLríkt og svaLt haustveður. HvöSS n- og na-Átt. Snjór Á fjaLLveg- um norðan- og norðauStanLandS. HöfuðborgarSvæðið: Bjart, en hvessir með skúrum síðdegis. Haustar snemma í ár í fyrra, hélst sumartíð langt fram í septem- ber. nú skipti til kólnandi veðurs strax í lok ágúst. veðrið verður með haustlægum blæ um helgina. Á morgun laugardag, reyndar hæglæti og víðast úrkomulaust ef austur- land er undanskilið. hiti vart nema 5 til 9 stig yfir daginn og víða næturfrost þar sem nær að létta til yfir nóttina. Á sunnudag þurfa vegfarendur að fylgjast vel með. hvessir af norðri og líklega með snjó á fjallvegum norðan- og austantil. 7 4 5 6 10 8 5 7 7 9 7 5 4 4 8 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is OYSTER PERPETUAL MILGAUSS Michelsen_255x50_G_0612.indd 1 01.06.12 07:22 elite model Look, leitin að næstu ofurfyrirsætunni, er nú að hefjast á íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu Elite hér á landi. Þar segir að keppnin gefi þúsundum stúlkna á aldrinum 14 til 22 ára tækifæri til að láta draum sinn rætast og feta í fótspor heimsþekktra elite fyrir- sæta einsog Cindy Crawford, stephanie seymour, gisele Bundchen, sigrid agren og Constance jablonski. elite á ís- landi verður í smáralind laugardaginn 8. september frá 11 til 15 þar sem stúlkum gefst kostur á að taka þátt í prufum fyrir keppnina. Magdalena Sara Leifsdóttir er vinningshafi elite model Look iceland 2011en hún tók þátt í elite model World í shanghai í desember á síðasta ári og kom heim með samning við elite World en það er, að því er segir í tilkynningunni, einn stærsti fyrirsætusamningur sem íslensk stúlka hefur fengið. - jh gallery restaurant á holti dúxaði gallery restaurant á hótel holti fékk á dög- unum 100 stig af 100 mögulegum í óháðri úttekt á vegum institute for hospitality management, sem er óháður úttektaraðili, sambærilegur við michelin. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur veitingastaður fær slíka úttekt og óhætt að segja að gall- ery restaurant hafi dúxað á prófinu, segir í tilkynningu. - jh K ona sem lét fjarlægja fals-aða PIP-sílikonbrjóstapúða úr bringu sinni á Landspítal- anum í febrúar lýsir afar erfiðum andlegum áhrifum. Hún segir að sér hafi liðið hrikalega, eins og hún væri afskræmd. Hún hafi gengið um heimili sitt í náttslopp svo vikum skipti. „Ég fékk áfall. Ég klæddi mig ekki. Ég grét. Það mátti ekki horfa á mig eða snerta,“ segir þessi kona sem kýs nafnleynd. „Maður fer í aðgerð, brjóstin tek- in, maður vaknar afskræmdur og ég horfði á líkamann. Ég var eins og lít- ill strákur,“ segir hún. „Ég var alltaf upp á Landspítala að dæla vökva úr brjóstunum. Þetta var hræðileg lífs- reynsla.“ Ríflega helmingur allra iðnaðar- sílikonbrjóstapúðanna sem fjar- lægðir hafa verið úr íslenskum konum á Landspítalanum reynd- ust sprungnir. Alls 95 af þeim 640 konum sem á tuttugu ára tímabili fengu fölsuðu PIP-púðana hafa látið fjarlægja þá á Landspítalanum. 45 bíða eftir aðgerð, samkvæmt upp- lýsingum velferðarráðuneytisins. Lilja Stefánsdóttir, framkvæmda- stjóri skurðlækningasviðs, segir aðgerðirnar hafa gengið vel eftir að fjölmiðlaathyglin beindist frá mál- inu. Konan ákvað á endanum að fara aftur í brjóstastækkun og stendur nú í þeim sporum að líkaminn er að hafna öðrum púðanum. Hún segist kvalin og ekki vita hvert framhaldið verður. Þrátt fyrir þessa stöðu seg- ist hún ekki finna fyrir flensuein- kennum, vanlíðan og hita frá þess- um púðum eins og hún fann frá PIP. Ráðuneytið bendir á að landlækn- isembættið segi það læknisfræði- legt mat að ekki þurfi sérstaka eft- irfylgni með konunum. „Ef konur hafa ekki látið taka púðana er þeim ráðlagt að leita til læknis ef þær finna fyrir einkennum.“ Fréttatíminn spurði velferðar- áðuneytið hvort íslensk yfirvöld hygðust sækja á frönsk yfirvöld vegna bágs eftirlits með franska sílikonframleiðandanum, sem í ára- tugi notaði iðnaðarsílikon í púðana í stað læknasílikons. Svarið er loðið; íslensk stjórnvöld skoði með Evr- ópuþjóðum hvort fært sé að sækja bætur til framleiðandans. Ráðuneytið telur ekki „slæmar heimtur“ að 353 konur af þessum 640 hafi farið í ómskoðun til Leit- arstöðvar Krabbameinsfélagsins: „Rannsóknir sem gerðar hafa verið benda ekki til þess að PIP brjós- tapúðarnir innihaldi skaðleg efni og víða erlendis var því einungis beint til kvenna með rofna púða að láta fjarlægja þá. Því er vart hægt að líta svo á að fáar konur hafi nýtt sér boð stjórnvalda, hvort sem átt er við ómskoðun eða brottnámsaðgerð á Landspítala.“ gunnhildur arna gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  viðtal 95 Konur haFa látið Fjarlægja ígræðslur á landspítalanum Leið eins og hún væri afskræmdur lítill drengur Fjarlægður púði úr íslenskri konu. kona sem lét fjarlægja iðnaðarsílikonpúða úr brjóstum sínum í febrúar ákvað fjórum mánuðum síðar að fá sér nýja. andlega hliðin var í molum og henni leið sem afskræmdum litlum dreng. nú er líkaminn við að hafna öðrum púðanum. af 640 konum sem fengið hafa PiP fóru 353 í ómskoðun og allt stefnir í að 140 láti yfirvöld fjarlægja púðana. „góðar heimtur,“ segir vel- ferðaráðuneytið. PiP púði dreginn úr franskri konu. Mynd/gettyimages 4 fréttir helgin 7.-9. september 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.