Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 10
Þórarinn
Þórarinsson
toti@
frettatiminn.is
ÚRVAL ÚTSÝN | LÁGMÚLA 4 108 REYKJAVÍK | SÍMI 585 4000 | FAX 585 4065 | INFO@UU.IS | WWW.URVALUTSYN.IS
* Innifalið: Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.**Hálft fæði = Morgun- og kvöldmatur. Allt innifalið = Morgun-, hádegis- og kvöldmatur, snarl milli mála og drykkir.
TENERIFE 27. OKT - 21 NÓTT
Hálft fæði innifalið
á mann miðað við 2 fullorðna í
tvíbýli með hálfu fæði á Hesperia
Troya í 21 nótt.
219.900 KR.-*
Hesperia Troya
Skemmtanastjóri: Kjartan Trausti
27. OKT - 19 NÆTUR
Ifa Buenaventura
Hálft fæði innifalið
Skemmtanastjóri: Ásdís Árnadóttir
á mann miðað við 2 fullorðna
í tvíbýli með hálfu fæði á Ifa
Buenaventura í 19 nætur.
KANARÍ
189.900 KR.-*
ÚRVALSFÓLK (60+)
FERÐALÖG
OG FRÁBÆR
FÉLAGSSKAPUR
EKKI MISSA AF
ÚRVALSFERÐINNI ÞINNI!
Í ferð með Úrvalsfólki er hópurinn samstæður og þú nýtur samvista við
jafnaldra, vini og kunningja. Skemmtanastjóri er með í sólarlandaferðum
og skipuleggur fjölbreytta dægradvöl. Skelltu þér með!
N ær þrefalt fleiri nutu fjár-hagsaðstoðar hjá Kópa-vogsbæ í fyrra en árið fyrir
hrun og er útlit fyrir að þeir verði
enn fleiri í ár. Árið 2007 fengu 235
heimili aðstoð að upphæð 118 millj-
ónir króna, á verðlagi síðasta árs,
en í fyrra var fjöldinn kominn í 656
og upphæðin nálgaðist 250 milljón-
ir. Full fjárhagsaðstoð nemur 142
þúsund krónum á mánuði hafi við-
komandi engar tekjur en eftir því
sem tekjur hækka minnkar fjár-
hagsaðstoðin sem því nemur þannig
að samanlagðar tekjur og fjárhags-
aðstoð fari aldrei yfir 142 þúsund
krónur. Hægt er að sækja um sér-
staka aðstoð vegna kostnaðar vegna
frístundastarfs barna og er hún þá
umfram grunnaðstoð.
Að sögn Aðalsteins Sigfússonar,
félagsmálastjóra Kópavogsbæjar,
eiga þeir sem eru með fjárhagsað-
stoð, í miklum fjárhagserfiðleikum.
„Þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnu-
málastofnun og eru ef til vill með
skertar bætur hjá Tryggingastofn-
un. Við höfum sérstakar áhyggjur af
þeim sem eru að detta út af atvinnu-
leysisbótum því þeir hafa einungis
rétt til atvinnuleysisbóta í þrjú ár.
Við erum farin að sjá dæmi um það
og gerum ráð fyrir að þeim fjölgi.“
Að sögn Aðalsteins endurspeglar
þessi þróun í greiðslu fjárhagsað-
stoðar ástandið í þjóðfélaginu. „Við
tölum um ástand því þetta er orðið
viðvarandi ástand, ekki krísa eins
og við héldum í fyrstu,“ segir Aðal-
steinn. „Við sjáum enga breytingu
eiga sér stað, hvorki fjárhagslega,
né hvað varðar viðhorf fólks. Engin
bjartsýni er ríkjandi, það er ekkert
jákvætt að gerast sem við verðum
vör við.“
Hann segir að fjárhagsaðstoð
eigi að vera skammtíma neyðarað-
stoð og sveitarfélögum beri að veita
hana. „Hins vegar er það alvörumál
að ríkið komi ábyrgðinni frá ríki til
sveitarfélaga og sé tilbúið til þess
að taka fólk af atvinnuleysisskrá
þannig að það þurfi að leita neyðar-
aðstoðar frá sveitarfélaginu og lifa
á enn lægri upphæð en sem nemur
atvinnuleysisbótum. Það verður
að tryggja að fólk hafi til hnífs og
skeiðar sem það hefur sannarlega
ekki á fjárhagsaðstoð,“ segir Aðal-
steinn.
Hann segist finna mun meiri
örvæntingu hjá fólki nú en áður.
„Fólki sem hingað kemur líður verr
og þótt við kappkostum við að taka
vel á móti fólki og greiða úr málum
þess bregst fólk í sumum tilvikum
harkalega við því það er hreinlega
örvinglað. Það hefur engar bjargir.“
Lágmarkslaun fyrir fullt starf:
193.000 krónur.
Grunnatvinnuleysisbætur:
167.126 krónur
Fjárhagsaðstoð: 142.100 krónur.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Fjárhagsaðstoð
sveitarfélaganna
er skilgreind sem
tímabundin neyð-
araðstoð en er nú
orðin varanlegt
lifibrauð æ fleiri
fjölskyldna. Þrefalt
fleiri njóta fjár-
hagsaðstoðar hjá
Kópavogsbæ nú en
fyrir hrun.
Guðbjartur HaNNessoN velferðarráðHerra
Tilmæli um hækkun
fjárhagsaðstoðar
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra segist hafna því alfarið
að ríkið sé að setja eitthvað í hend-
urnar á sveitarfélögum. „Fjár-
hagsaðstoð er lögbundin þjónusta
sveitarfélaganna. Auðvitað er það
áhyggjuefni hvað bætur eru lágar
í félagslega kerfinu en sveitar-
félög hafa sjálfsforræði í því. Ríkið
hefur ekki boðvald um það en við
höfum gefið út tilmæli um að fjár-
hagsaðstoð sveitarfélaganna sé
ekki lægri en sem nemur atvinnu-
leysisbótum,“ segir hann.
„Við höfum verið að reyna að
mæta þessum verst stadda hópi
sérstaklega og gerum ráð fyrir
því í fjárlagafrumvarpinu sem
lagt verður fram innan skamms,“
segir Guðbjartur en vill ekki út-
skýra nánar hvað felst í því.
Að sögn Guðbjarts eru þeir sem
eru í mestum vanda fólk sem býr
eitt og fólk með börn og er það
ekki síst vegna mikils húsnæðis-
kostnaðar.
„Við höfum brugðist við þess-
ari þróun, meðal annars með því
að lengja atvinnuleysisbótatíma-
bilið í fjögur ár tímabundið. Það
fellur niður um næstu áramót
og munum við á næstunni taka
um það ákvörðun í samvinnu
við stéttarfélög og sveitarfélögin
hvernig við munum bregðast
við því. Það er ekki hugmyndin
að fólk sé á atvinnuleysisbótum
sem félagslegum bótum heldur
séu þær bætur á meðan fólk er í
atvinnuleit.“ -sda
ÞrefAlt fleiri fá fjárhAgSAðStoð
Aldrei hafa fleiri heimili
óskað eftir fjárhags
aðstoð í Kópavogi.
2007 2008 2009 2010 2011
11
8.
32
8.
62
3
kr
ón
u
r
15
7.
86
0.
09
1
kr
ón
u
r
18
6.
35
8.
88
2
kr
ón
u
r
24
0.
01
9.
47
9
kr
ón
u
r
24
7.
51
6.
22
7
kr
ón
u
r
23
5
he
im
il
i
39
6
he
im
il
i
49
5
he
im
il
i
55
5
he
im
il
i
65
6
he
im
il
i
fjárHaGsaðstoð Þrefalt fleiri fá aðstoð
Tímabundin neyðaraðstoð
orðin varanleg framfærsla
Tæplega helmingur örorkulífeyrisþega
fær einhverjar greiðslur úr lífeyrissjóði
auk örorkulífeyris úr almannatrygg-
ingakerfinu. Ríkissjóður nær þó drjúgum
hluta greiðslnanna úr lífeyrissjóðum til
baka með sköttum og tekjutengingum.
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir, félags-
ráðgjafi hjá Öryrkjabandalagi Íslands,
útskýrir með dæmi í vefriti ÖBÍ hvernig
aðeins 1.273 krónur standi eftir af 40.000
króna greiðslu úr lífeyrissjóði standi eftir
þegar ríkið hefur tekið sitt.
„Örorkulífeyrisþeginn í dæminu fær
útborgað á mánuði 25.064 kr. úr lífeyris-
sjóði en sömu tekjur (40.000 kr. fyrir
skatt) skerða örorkulífeyri hans (eftir
skatt) frá TR um 23.791 kr. á mánuði.
Samanlögð er þá skerðing vegna tekna
úr lífeyrissjóði og tekjuskattur af sömu
greiðslum 38.727 kr. á mánuði. Því gefa
40.000 kr. á mánuði (fyrir skatt) frá líf-
eyrissjóði aðeins 1.273 kr. hærri ráð-
stöfunartekjur. Meginhluti greiðslnanna
tekur ríkið til sín í formi tekjuskatts og
tekjutenginga,“ segir Sigríður Hanna.
Sigríður Hanna áréttar að þegar útgjöld
til almannatrygginga séu til umræðu sé
mikilvægt að hafa í huga hversu stór hluti
tekna lífeyrisþega renni aftur til ríkis-
sjóðs í gegnum skerðingar, tekjutenging-
ar og skatta. „Dæmið sýnir enn fremur
hversu miklar tekjuskerðingar geta verið
í almannatryggingakerfinu og á það sér-
staklega við um sérstaka uppbót til fram-
færslu, sem skerðist krónu á móti krónu.
Svipuð útkoma yrði ef 40.000 [króna]
lífeyrissjóðstekjum yrði skipt út fyrir
40.000 [króna] atvinnutekjur á mánuði.“
Örorka skattar oG tekjuteNGiNG éta upp lífeyri
Rúmar 1.200 krónur standa eftir af 40.000
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir segir
mörgum örorkulífeyrisþegum sem leita
til ÖBÍ misbjóða hversu lítinn hluta líf-
eyrissjóðsgreiðslna þeir fái í vasann.
10 fréttir Helgin 7.-9. september 2012