Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 30

Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 30
É g hef afskaplega gaman af mat. Mér finnst gaman að borða hann, gaman að elda hann, gaman að tala um mat, lesa um mat og skrifa um mat,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir matargúrú. Nanna hefur verið aufúsugestur á mörgum heimilum landsins undanfarin ár með bækur sínar um mat. Alls eru þær nú orðnar þrettán talsins og hafa þær samtals selst í um sjötíu þús­ und eintökum. En framan af var ekki útlit fyrir að Nanna yrði frambærileg í eldhúsinu. Varð góður kokkur eftir skilnaðinn „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mat og hef lesið um mat frá því ég var krakki. Það var að vísu engin matreiðslubók til á heimilinu en mamma átti fjölrituð blöð úr húsmæðraskólanum sem voru músétin. Seinna eignaðist ég bók sem var unnin upp úr þessum blöðum og þá þekkti ég heilu og hálfu frásagnirnar. Ég hafði aftur á Matur og kynlíf er ágæt blanda Nanna Rögnvaldardóttir hefur frætt landsmenn um mat og matargerð um árabil. Alls hefur hún selt um sjötíu þúsund bækur á ferlinum og von er á fleiri. Nanna varð ekki góður kokkur fyrr en hún skildi við manninn sinn því þá þurfti hún ekki lengur að elda eins og tengdamamma hennar hafði gert og gat farið að gera eigin til- raunir. Auk þess að skrifa bækur um mat vinnur Nanna sem ritstjóri hjá Forlaginu. Bækur um kynlíf lenda oftar en ekki á hennar borði og segir Nanna að það séu meiri tengsl milli matar og kynlífs en margur kynni að halda. móti ekkert voða gaman af því að elda framanaf og var ferlega vondur kokkur. Spurðu bara börnin mín, þau segja að þau hafi ekki fengið annað en pylsur á þess­ um árum en það eru að vísu ýkjur,“ segir Nanna þar sem við sitjum í borðstofunni hennar á Grettisgötu. Miklar breytingar urðu á lífi Nönnu upp úr þrítugu. „Ég skildi við manninn minn. Eftir það fór ég að vinna mjög mikið og þurfti allt í einu ekki að elda þessa gömlu rétti sem ég hafði alltaf gert – þessa venjulegu íslensku hversdagsrétti. Ég gat bara farið eftir því sem ég vildi og þurfti ekki að elda matinn eins og tengdamamma hafði gert.“ Eftir skilnaðinn flutti Nanna í nýja íbúð og þar var eldhús með mun betri vinnuaðstöðu en hún hafði haft. „Svo hætti ég að reykja og bragðskynið gjör­ breyttist í kjölfarið. Þarna fékk ég mikinn áhuga á matargerð. Ég þurfti líka að leggja mig mikið fram út af börnunum mínum sem höfðu mjög ólíkan matar­ smekk. Á þessum árum var annað þeirra grænmet­ isæta en hitt vildi ekki sjá grænmeti. Það var því púsluspil að finna eitthvað sem var ekki of mikið vesen að breyta þannig að það hentaði báðum.“ Fór leynt með áhugamálið Nanna færði sig smám saman upp á skaftið í eldhús­ inu en það háði henni hvað hún er utan við sig. „Ég hef mjög götótt minni og var alltaf að ruglast. Mér fannst ég alltaf vera að fletta upp sömu hlutunum. Þegar ég var komin með tölvu fór ég að slá þar inn minnisatriði fyrir sjálfa mig. Þetta jókst smám saman og fólk sem vissi af þessu hafði áhuga á þessum punktum þannig að ég fór að ljósrita þetta. Svo var þetta orðið svo stórt að mér fannst ég ekki geta verið að stelast til að ljósrita þetta í vinnunni í mörgum ein­ tökum fyrir fólk úti í bæ. Yfirmaðurinn, Jón Karlsson forstjóri Iðunnar, rakst á þetta hjá ljósritunarvélinni og ég hélt að ég væri í vondum málum. Hann sagði hins vegar að við ættum að gefa þetta út og ég fengi þann tíma sem ég þyrfti til að gera þetta að almenni­ legri bók.“ Úr minnisblöðum Nönnu varð bókin Matarást til; mörg hundruð blaðsíðna alfræðirit um mat með upp­ skriftum í kaupbæti. „Mér hafði aldrei dottið í hug að skrifa matreiðslubók. Það sem ég var að skrifa var bókin sem mig vantaði sjálfa, bók með upplýsingum um hvernig ætti að gera hlutina, um söguna og bak­ grunninn og allskonar erlenda rétti. Upphaflega áttu ekki að vera uppskriftir í þessari bók en þeim var bætt við á seinni stigum,“ segir Nanna. Matarást er löngu uppseld en hún er aðgengileg á vefnum Snara.is ásamt Matreiðslubók Nönnu. Forlagið vill erótíska matreiðslubók Alls hefur Nanna skrifað þrettán matreiðslubækur. Sú nýjasta, Múffur í hvert mál, kom út á dögunum. Auk þess skrifaði hún bókina Icelandic Food and Cookery fyrir bandarískt forlag. Nanna starfaði um nokkurra ára skeið hjá Gestgjafanum. „Fyrst um sinn fannst mér voða gaman að vinna við áhugamálið en svo komst ég að því að það ætti ekki við mig. Ég vildi hafa þetta fyrst og fremst áhugamál. Þá fór ég bara að vinna aftur í bókaútgáfu – þar er ég búin að vinna í 26 ár og þar á ég heima.“ Nú starfar Nanna sem ritstjóri hjá Forlaginu sem gefur einmitt út bækur hennar. Hún ritstýrir alls kyns bókum en sérsviðið eru matreiðslubækur og kynlífs­ bækur, sem kann að koma einhverjum á óvart. „Matreiðsla og kynlíf. Ég kann ekki skýringu á því. Kannski af því að ég er svo gömul og fólk heldur að ég sé reynslunni ríkari,“ segir Nanna og glottir. „Hitt er svo annað mál að það eru ákveðin tengsl á milli matar og kynlífs. Fólk flettir matreiðslubókum að einhverju leyti eins og það væri með kynlífsbækur eða klámblöð í höndunum. Það flettir bókunum og lætur sig dreyma og hugsa um hvað þetta væri nú æðislegt og svo kannski gerir það aldrei neitt. Þetta er svona ákveð­ inn draumur. Hvort tveggja höfðar til nautna. Ég las einhvern tímann grein eftir konu sem var að bera saman hlutina nú og fyrir 40­50 árum. Þá var kynlífið tabú en húsmæðurnar stóðu heima og eld­ uðu. Nú hefði þetta snúist við því það væru allir rosa opnir með kynlífið en matur, nautnamatur; sætt og fituríkt, þetta væri orðið algjört tabú. Mér fannst þetta skemmtileg pæling.“ Er þetta ekkert skrýtin blanda, að vera eina stund­ ina að ganga frá matreiðslubók en þá næstu að lesa yfir 365 sexý stellingar? „Ég sá einmitt um hana! Neinei, þetta er bara vinna. Ég er með allskonar aðrar bækur líka. Það er auðveld­ ara að útskýra fyrir barnabörnunum að maður sé að vinna í matreiðslubók heldur en kynlífsbók ef ég er með heimavinnu. En þau eru nú svosem öllu vön.“ Framkvæmdastjóri Forlagsins lét hafa eftir sér á dögunum að erótískar bækur væru það sem allt snerist um í bókabransanum í dag. Berð þú ábyrgð á þessu? „Ég veit satt best að segja ekki alveg hvað er að gerast. Þetta eru bara skyndibitar. Það er nú búið að stinga upp á því við mig að ég skrifi erótíska mat­ reiðslubók. Ég er nú ekki alveg búin að samþykkja það.“ Þú kvartar varla meðan það er nóg að gera í vinnunni? Framhald á næstu opnu Nanna Rögn- valdardóttir er úr Skagafirði en hefur búið í 101 Reykjavík síðan hún fluttist á mölina. Hér er hún á heima- velli sínum; eldhúsinu Ljósmynd/Hari 30 viðtal Helgin 7.-9. september 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.