Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 42
ÚTGEFANDI:
SÁÁ – Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Sími: 530 7600
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Gunnar Smári Egilsson
RITSTJÓRI:
Mikael Torfason
BLAÐAMAÐUR:
Ragnheiður Kristjónsdóttir
LJÓSMYNDIR:
Haraldur Jónasson
UMBROT:
Jón Óskar Hafsteinsson
Sjálfsagt kannast margir áfengis- og vímuefnasjúklingar við að hafa selt sér þá hugmynd að það gagnist ekki að leita sér
hjálpar því hjálpin hefði ekki dugað einhverjum
öðrum. Þetta er náttúrlega bilað viðhorf; jafn
bilað og ef krabbameinssjúklingur myndi ekki
þiggja meðferð vegna þess að einhver sem hann
þekkti hefði ekki fengið bata. Óbilað
viðhorf er elta árangurinn og batann;
sækjast eftir meðferð vegna þess að
hún hefur gagnast og dugað öðrum;
elta vonina til lífs en láta ekki von-
leysið keyra sig niður.
Eins og áfengis- og vímuefnasjúk-
lingar vita breytist margt þegar þeir ákveða að
elta vonina og lífið. Það heitir að vera edrú; þegar
óttinn víkur og sektin mótar ekki lengur lífið
heldur byggir fólk upp líf á árangri, gleði og sam-
kennd.
Þegar horft er til stefnu heilbrigðis- og vel-
ferðaryfirvalda í málefnum áfengis- og vímuefna-
sjúkra minnir hún því miður fremur á sjónarmið
sjúklinga í neyslu en fólks í bata. Þrátt fyrir
ótrúlegan árangur Íslendinga í meðferð við
áfengis- og vímuefnasýki; þrátt fyrir að hér sé
hlutfallslega stærsta samfélag áfengis- og vímu-
efnasjúklinga í bata í heiminum og þrátt fyrir
að varla sé til sá Íslendingur sem ekki þekkir
dæmi þess úr eigin fjölskyldu eða vinahópi
hvernig veikasta fólk hefur náð að öðlast heilsu
og lífshamingju á ný fyrir tilverknað SÁÁ, 12
spora samtaka og annarra þátta sem mynda hina
sterka umgjörð utan um þennan sérstaka árang-
ur okkar Íslendinga; þá hefur heilbrigðis- og vel-
ferðaryfirvöldum ekki auðnast að elta árangur-
inn og batann og byggja stefnu sína á honum.
Þess í stað þráast þau við að styðja hið öfluga
samfélag áfengis- og vímuefnasjúklinga í bata
til að sækja enn fram; færa bata og bætt lífsgæði
til fleiri; styrkja þjónustu við þá sem þurfa á sér-
stakri hjálp eða meðferð að halda og byggja upp
forvarnir fyrir börnin sem eru í mestri hættu;
börn alkóhólista.
Í stað þess að elta árangurinn og batann kjósa
yfirvöld að dvelja í efanum og úrræðaleysinu.
Þegar þeim er boðið upp á lausnir byggðar á
nýjustu þekkingu og bestu reynslu; kasta þau
fram fullyrðingum um sjúklinga sem vilja ekki
bata, efasemdum um að bati sé mögulegur eða
fordómum um að sumum sé einfaldlega ekki
viðbjargandi. Yfirvöldum fyrr á árum; áður en
glæsilegur árangur undanfarinna áratuga kom
fram; var ef til vill vorkunn að halda fram slíkum
sjónarmiðum. Í dag; þegar öllum ætti að vera
ljóst að við höfum öll þau tæki sem þarf; alla þá
þekkingu sem þarf og alla hæfni sem þarf til að
veita mun fleiri aðgang að bataleið frá áfengis- og
vímuefnasýki; þá er það einfaldlega biluð stefna
að elta ekki árangurinn.
En, peningarnir; hvað með peningana?
Kosturinn við mótun áfengis- og vímuefna-
stefnu er að heilbrigðis- og velferðaryfirvöld
þurfa ekki að hugsa um kostnað vegna með-
ferðar og þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúk-
linga eða ofneyslufólk. Í fyrsta lagi vegna þess
að í þessum málaflokki þarf samfélagið alltaf að
borga á endanum; valið stendur um að borga lítið
núna eða miklu meira seinna. Í öðru lagi hafa
áfengis- og vímuefnasjúklingar þegar borgað
fyrir alla þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda.
Það er lagður sérstakur skattur á veikindi þeirra
í formi áfengisgjalds; líklega borga alkóhólistar
og það ofneyslufólk sem ástundar heilsuskaðlega
drykkju; vel rúmlega 9000 milljónir króna árlega
í áfengisgjald.
Það er því bæði rangt og siðlaust af hinu
opinbera að þykjast ekki hafa efni á að byggja á
glæsilegum árangri undanfarinna ára og efla enn
heilbrigðis- og félagsþjónustu við þá um 30 þús-
und Íslendinga sem glíma við áfengis- og vímu-
efnasýki. Við höfum þekkinguna, hæfnina og
getuna til að reka hér heilbrigða og edrú stefnu
í málefnum þessa fjölmenna hóps – og hópurinn
sjálfur hefur þegar lagt til fjármagnið.
Í stað þess að elta árangurinn og batann kjósa
yfirvöld að dvelja í efanum og úrræðaleysinu
leiðari
Stefnan þarf að vera edrú
Gunnar
Smári
egilsson
skrifar
Róna-
gangan
sló í gegn
í fyrra
Það vakti mikla lukku þegar sagn-
fræðingurinn Guðjón Friðriksson
bauð upp á svokallaða Rónagöngu
í september í fyrra og á morgun
klukkan 14 endurtekur hann leik-
inn. Áhugasamir mæti á Ingólfstorg
klukkan tvö og þaðan verður gengið
beint að horni Aðalstrætis og Austur-
strætis en þar var frægur staður sem
kallaður var Svínastían: „Barinn var
þrískiptur og stéttaskiptingin mikil
en lægstir í virðingarstiganum voru
dónarnir svokallaðir,” útskýrir Guð-
jón Friðriksson en hann kann margar
góðar sögur af Svínastíunni og fleiri
krám í kring.
„Þetta var afskaplega heppnuð ferð
í fyrra og það voru fjölmargir sem
mættu – ætli það hafi ekki verið um
80 manns. Gangan vakti heilmikla
athygli og það var sagt víða frá henni
í blöðum. Í kjölfarið komu
beiðnir frá ýmsum aðilum
um að ég myndi endurtaka
gönguna,“ segir Guðjón sem
reiknar með að gangan í ár
verði í svipuðum dúr og í
fyrra.
„Þetta verður í stórum
dráttum svipað þó svo að ég hafi bætt
við mig þekkingu um efnið. Hafnar-
strætið og Arnarhóllinn eru mið-
punkturinn og yfirskriftin á göng-
unni er Ofdrykkjumenn í Reykjavík
fyrr og síðar og aðstæður þeirra. Ég
fer yfir sögu þeirra frá því á nítjándu
öld og fram á vora daga og þeirra
hagi. Þeir áttu nú lengi vel hvergi
athvarf, lágu undir bátum og holuðu
sér á yfirgefnum stöðum – gjarnan
óupphituðum skúrum,“ segir Guðjón
sem ætlar að leiða okkur í allan sann-
leika um sögu rónanna í Reykjavík á
morgun.
Guðjón FriðrikSSon endurvekur rónaGönGuna:
Rónagangan hans
Guðjóns vakti lukku í
fyrra en þar fer Guðjón
yfir sögu rónanna frá
nítjándu öld og fram á
vora daga.
Viðtöl við
ráðgjafa
SÁÁ
Vakthafandi ráðgjafi svarar
í síma 530 7600 en það er
númerið sem hringt er í
viljir þú óska eftir viðtali
við áfengis- og vímefnaráð-
gjafa á göngudeild Áfengis-
og fjölskyldudeildar SÁÁ.
Símatími er alla virka daga
frá klukkan níu til fimm.
Ekki er nauðsynlegt að
panta tíma hjá ráðgjafa
fyrirfram heldur er nóg að
mæta í Von, Efstaleiti 7, á
opnunartíma og óska eftir
viðtali. Auk viðtalsþjónustu
heldur SÁÁ úti sérstökum
síma fyrir unglinga og að-
standendur þeirra. Síminn
er ávallt opinn og er núm-
erið 824-7666. Efni viðtala
unglinga, fullorðinna og
aðstandenda er mismunandi
og getur verið allt frá því
að einstaklingur kemur til
að bera undir ráðgjafa eitt
afmarkað atriði og til þess
að einstaklingur kemur til
að fá heildstæða ráðgjöf og
aðstoð til að gera varanlegar
breytingar á lífstíl sínum.
Allir þeir sem telja sig eiga
við vanda að stríða vegna
notkunar vímuefna, eða
eiga aðstandanda sem á við
slíkan vanda, geta leitað til
göngudeildar Áfengis- og
Fjölskyldudeildar SÁÁ.
s Hvað: Rónaganga
P Hvar: Hittumst á Ingólfstorgi
æ HvenÆr: Á morgun kl. 14
m FYrir Hvern: Allir velkomnir
L nÁnar: www.saa.is
LJ
Ó
SM
YN
D
: G
U
N
N
AR
G
U
N
N
AR
SS
O
N
2 SEPTEMBER 2012