Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 70
54 bílar Helgin 7.-9. september 2012
ReynsluakstuR toyota PRius+ fRábæR fyRiR baRnmaRgaR fjölskylduR
ÖLL ÖKURÉTTINDI
ÖLL VINNUVÉLARÉTTINDI
Hafðu samband í síma: 822 45 02 eða www.meiraprof.is
Toyota Prius+ er draumabíll hagsýnu, með-
vituðu og umhverfisvænu nútíma[hús]móður-
innar.
k aupir matvöruna í Iceland, bleiurnar í Bónus, spírúlínu og trefjar í Krónunni. Borðar í hádeginu hjá Lifandi markaði og
ekur á milli í Toyota Prius+. Þetta er lýsing á hinni
fullkomnu, hagsýnu, meðvituðu og umhverfisvænu
nútíma[hús]móður í Kópavogi. En ekki hvað?
Hún fer ekki ómáluð upp í bílinn, því horft er á
hana á Prius+. Glænýr, glansandi, hvítur bíllinn er
eftirtektarverður. Þakið úr gleri, snertiskjár til að
stilla útvarpið og bakkmyndavél svo ekki þarf hún
að snúa sig úr hálsliðnum við það eitt að bakka.
Flottast finnst henni hvernig hraðamælirinn kastar
tölunni í framrúðuna svo hraðinn fer ekki framhjá
henni.
„Hvaða drossía er þetta?“ spyr vinkona hennar
um leið og hún vippar sér inn í farþegasætið. Þær
eru að fara í bíó. „Hybrid, hybrid. Þetta er fram-
tíðin,“ svarar sú nútímalega brosandi og ýtir pinn-
anum á sjálfskiptingunni fram. Hún ætlar að bakka!
Það kviknar á myndavélinni og bílinn byrjar að pípa
rétt eins og þær bakki sendibíl. „Já, já, ég er að fara
að spenna beltið,“ æpir vinkonan upp. „Nei, það er
verið að minna mig á að ég er að bakka,“ svarar
nútímakonan kímin og hálf móðguð yfir hugulsemi
framleiðandans. Hún hugsar: Væri ekki betra ef
hann pípti þegar ég er við það að aka á?
En móðirin er bara með bílinn til reynslu. Kvöld-
inu áður kom hún óvænt á honum heim. Hún kall-
aði: „Elskan, viltu koma á rúntinn?“ Ef hann hélt
að hún væri að bjóða honum rómantískt út var það
misskilningur, því tíu mínútum síðar stendur hann
á planinu að reyra þrjá bílstóla í aftursætið. Börnin
þrjú eru að fara í sinn fyrsta rúnt á ævinni enda öll
fædd eftir kreppu og óráð að eyða bensíni í bíltúra.
En 100 kílómetrar á 4,1 lítra í blönduðum akstri.
Það ætti að vera öllum bifreiðaeigendum viðráðan-
legt.
Hún býður honum að taka í veglegt, leðurklætt
stýrið með öllum helstu tökkum í fingurgómafjar-
lægð. Hvað gerir hann? Keyrir bílinn beint úr borg-
inni. Það þarf að prófa bílinn á möl. Týpískt! Bílinn
stóðst væntingar.
Ekki of framúrstefnulegur, þótt hann glefsi í
framtíðina með batteríinu á milli framsætanna, sem
hleðst við keyrslu og nýtist á ljósum. Líka þegar
hún rennir sér morguninn eftir á rafhlöðunni niður
Öskjuhlíðina með tvo ólátabelgi í aftursætinu á leið
með þá í leikskólann og sjálfa sig í vinnuna. En þó
ekki fari hún yfir fjörutíu. Þá tekur bensínið við.
„Mamma, getum við ekki bara keypt þennan?“
spyr frumburðurinn úr aftursætinu. „6,1 milljón!
Skoðum það þegar Ísland er komið inn í framtíðina,
því þetta er eigulegur gripur,“ svarar hagsýna móð-
irin sem hefur ekki efni á umhverfismeðvitundinni
um þessar mundir. Hún hugsar: Í fullkomnum
heimi ækjum við um á Prius+.
„Hvaða
drossía
er þetta?“
spyr vin-
kona og
er svarað:
„Hybrid,
hybrid.
Þetta er
framtíðin.“
Getum við ekki keypt þennan?
Plúsar
Flottur
Rúmgóður
Umhverfisvænn
Bakkmyndavél
Eco stilling fyrir sparsama
Power takkinn fyrir stressaða
Glasahaldarar víða
Tvö aukasæti í skottinu. Það skýrir
plúsinn.
Tekur þrjá barnastóla
Regnskynjari á rúðuþurrkum
Mínusar
Pípið í bakkgírnum
Handstillanleg framsæti
Aftursætið mætti líta veglegar út
Flottari hjómflutningsgræjur hefðu
slegið í gegn
Einkunn:
Plús fyrir Príus+
+
÷
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is