Læknablaðið - 15.02.1995, Side 18
AUGMEIXITIIM
amoxicillín + klavúlansýra
ÁKJÓSANLEGT FYRSTA LYF
ÞEGAR MEÐHÖNDLA Á SÝKINGAR
í EFRI LOFTVEGUM
AUGMENTIN (SmithKline Beecham, 870191) RO Eiginleikar: Lyfið er blanda af amoxicillíni og
klavúlansýru, sem breikkar verkunarsvið amoxicillíns, sem þar með verður virkt gegn mörgum
sýklategundum, sem framleiða beta-laktamasa, t.d. klasasýklum, H. influenzae, Branhamella
catarrhalis og B. fragilis, N. gonorrhoeae og mörgum Gram-neikvæðum stöfum. Amoxicillin hefur
sýkladrepandi verkun, en klavúlansýra hefur nánast enga beina verkun á Sýkla. Bæði efnin
frásogast vel frá meltingarvegi. Helmingunartími er u.þ.b. 1 klst. Útskiljast að mestu með þvagi í
virku formi. Ábendingar: Sýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir penicillíni og skyldum lyfjum, mononucleosis. Saga um gulu eða
skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á Augmentin eða skyldum lyfjum. Meðganga og
brjóstagjöf: Virku innihaldsefni lyfsins fara bæði yfir fylgju og a.m.k. amoxicillín útskilst í
brjóstamjólk, en efnin eru skaðlaus fyrir fóstur og brjóstmylkinga. Eins og ávallt, skal gæta
varúðar við lyfjagjöf á meðgöngutíma, einkum á fyrsta þriðjungi meðgöngu. Aukaverkanir:
Niðurgangur, ógleði og uppköst koma fyrir. Einkenni frá meltingarvegi eru minni, ef lyfið er tekið
fyrir máltíð. Húðútbrot (auknar likur við veirusýkingar). Alvarlegt ofnæmi, svo sem toxic
epidermal necrolysis, lost og urticaria sjást. Nokkrum tilvikum af pseudomembranous colitis hefur
verið lýst. Hætta skal gjöf ef útbrota verður vart. Lifrarbólga og gula (stíflumynd) getur komið
fyrir í einstaka tilvikum, einkum hjá fullorðnum og öldruðum sjúklingum og getur verið alvarleg.
Einkenni koma oftast fram meðan á meðferð stendur, en getur orðið allt að 3 vikum eftir að
meðferð er hætt. Lifrarbólgan gengur oftast yfir, en í einstaka tilvikum hefur hún leitt til dauða.
Alltaf hefur verið um alvarlega veika sjúklinga að ræða með undirliggjandi sjúkdóma og á
mörgum öðrum lyfjum. Væg hækkun lifrarenzýma hefur sést hjá sjúklingum, sem eru á meðferð
með ampicillíni og skyldum lyfjum, en óvíst er um þýðingu þessa fyrirbæris. Candidasýkingar í
meltingarvegi (sjaldan). Fækkun á blóðflögum og hvítum blóðkornum svo og lenging á
blæðingatíma og prothrombintíma hefur verið lýst. Milliverkanir: Próbenecíð seinkar útskilnaði
amoxicillíns, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Því er ekki mælt með samtímis gjöf próbenecíðs og
Augmentin. Samtímis gjöf ampicillíns og allópúrínóls eykur líkur á útbrotum, hugsanlegt er, en þó
ósannaö, að hið sama gildi um amoxicillín. Varúð: Við skerta nýrnastarfsemi (kreatínínklerans < 30
ml/mín.) þarf að minnka skammta. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi.
Vegna aspartaminnihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu.
Skammtastærðir handa fullorðnum: 250 mg þrisvar sinnum á dag. Við alvarlegri sýkingar og
lungnasýkingar 500 mg þrisvar sinnum á dag. - Æskilegt er að gefa lyfið fyrir máltíð.
Klavúlansýra eyðileggur (5-lactamasa
Amoxicillín verður aftur fullvirkt
Augmentin mixtúra 25 mg + 6,25 mg
Augmentin mixtúra 50 mg + 12,5 mg
/ ml
/ ml
Augmentin töflur 250 mg + 125 mg
Augmentin töflur 500 mg + 125 mg
S. pncumomae
II. influenzac
Slrept. pyogenes
Staph. aureus
li.MNta Kgl.'IJ',
næmir(%) ■■
Sýklafræðideild Lsp., KGK, Janúar 1995
Skammtastærðir handa börnum:
Mixtúra 25 mg + 6,25 mg/ml (1 ml mixtúra = 25 mg amoxicillín):
Líkams- Dagsskammtur 20 mg/kg 40 mg/kg
þyngd (venjulegur skammtur)
5-6 kg IV2 ml x 3 2'h ml x 3
7-9 kg 2 ml x 3 4 ml x 3
10-12 kg 2V2 ml x 3 5 ml x 3
Mixtúra 50 mg + 12,5 mg/ml; (1 ml mixtúra = 50 mg amoxicillín):
SmithKðin© Beecham
Líkams- þyngd Dagsskammtur 20 mg/kg (venjulegur skammtur) 40 mg/kg
7-9 kg 1 mlx3 2 ml x 3
10-12 kg IV2 ml x 3 2Vz ml x 3
13-19 kg 2V2 ml x 3 5 ml x 3
20-30 kg 4 ml x 3 7V2 ml x 3
>30 kg 5 ml x 3 10 ml x 3
Athugið: Fullbúin mixtúra hefur7 daga geymsluþol í ísskáp (2-8C).
Pakkningar Mixtúruduft 25 mg + 6,25 mg/ml: 80 ml
og verð: Mixtúruduft 50 mg + 12,5 mg/ml: 80 ml
Töflur 250 mg + 125: 16 stk. (þynnupakkað)
Töflur 500 mg + 125 mg: 16 stk. (þynnupakkað)