Læknablaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 89
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
197
Tryggingafrettir
Útboð vegna
hjálpartækja
Nýlega hefur TR, að loknu
útboði hjá Ríkiskaupum, samið
við átta innlend stoðtækjafyrir-
tæki um kaup á spelkum, gervi-
limum og bæklunarskóm. Fyrir-
tækin eru: Giktlækningastöð
Giktarfélags íslands. Hjálpar-
tækjabanki RKÍ og Sjálfsbjarg-
ar, Landspítalinn, endurhæf-
ingardeild (iðjuþjálfun), Orthos
Orthopedi Tækni, Skóstofan
Össur hf. Stoðtækjasmíðin Stoð
hf, Stoðtækni Gísla Ferdinands-
sonar og Össur hf. Frá 1. janúar
1995 tekur TR eingöngu þátt í
kostnaði við kaup á áðurnefnd-
unt hjálpartækjum frá þessum
fyrirtækjum, sem eru hvert og
eitt með tiltekinn hluta/tegund-
ir hjálpartækja. Unnið er að
gerð ítarlegs verðlista með
ntyndum til hagræðis fyrir
lækna. Reiknað er með að þessi
breyting flýti mjög afgreiðslu
umsókna um hjálpartæki hjá
TR og spari starfsfólki mikla
vinnu ekki síst bréfaskriftir. Til
dæmis þarf ekki lengur að bíða
eftir kostnaðaráætlunum frá
stoðtækjasmiðum þar sem verð-
ið er nú fast, og auðveldara ætti
að vera fyrir lækna að átta sig á
hvaða vörur eru í boði, frá
hvaða framleiðendum og á
hvaða verði. Þjónusta TR á
þessu sviði ætti því að batna til
muna en kostnaður vegna þessa
málaflokks var um 170 milljónir
króna árið 1994.
Samdráttur í Svíþjóð
Eins og komið hefur fram í
fréttum lagði sænski fjármála-
ráðherrann nýlega fram tillögur
um talsverðan samdrátt í vel-
ferðarkerfinu. Reynt verður að
spara 20 milljarða sænskra
króna á næsta ári. Lækka á
barnabætur, fæðingarorlof og
upphæðir þessara bótaflokka
munu ná hæst 75% af tekjuvið-
miðun í stað 90%. Greiðslur
vegna lífeyristrygginga lækka
einnig hjá ellilífeyrisþegum.
Auka á kostnaðarhlutdeild
sjúklinga í lyfjum. Pað er því
víðar samdráttur en á íslandi.
Það vekur athygli, að mitt í allri
sparnaðarumræðunni hafa
komið fram rannsóknir sem
benda til þess að svokallaður
„karensdagur", það er biðtím-
inn eftir sjúkradagpeningum
hafi slæm áhrif á heilsu þeirra
sem vinna krefjandi störf. Það
er nefnilega hollt að mati Dr.
Finns Diderichsen dósents við
Karólínska sjúkrahúsið að geta
tekið sér frí (verið veikur) einn
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
og einn dag frá erfiðum störfum
og þeir sem það gera eru oft
hressari og við betri líðan en
þeir sem aldrei taka sér frí.
Samkvæmt sænskum heimild-
um á að leggja þennan karens-
dag niður 1. janúar 1997. Eða
eins og Svíarnir segja: „Slopad
karens bra för hálsen!". í fram-
haldi af þessu má minna á, að á
Islandi eru „karensdagarnir" 14
að tölu. (Nafnið „ísland" merk-
ir í raun „land Guðs“ samkvæmt
nýlegri bók Gunnars Dal, það
er hafi upphaflega verið „Es-
land).
Vissir þú.......
.... að sækja þarf sér-
staklega um tekjutryggingu,
uppbót á lífeyri og aðrar
heimildarbætur?
.... að ef örorka vegna
slysa er 50% eða hærri, þá
fær hinn slasaði ekki ein-
greiðslu heldur mánaðarleg-
ar bætur (lífeyri)?
.... Að ellilífeyrisþegar
geta í vissum tilfellum átt
rétt á slysadagpeningum?
jv