Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1995, Síða 31

Læknablaðið - 15.02.1995, Síða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 145 Helsinkiyfirlýsing Alþjóðafélags lækna Ráðleggingar fyrir lækna um læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum Samþykkt á átjánda Heimsþingi lækna í Helsinki í júní 1964, breytt á tuttugasta og níunda þinginu í Tókíó í október 1975, á þrítugasta og fimmta þinginu í Feneyjum í október 1983 og á fertugasta og fyrsta þinginu í Hong Kong í september 1989. Inngangur Það er hlutverk læknisins að vemda heilbrigði manna. Þekking hans og samviska eru helguð því að rækja þetta hlutverk. Genfarheit Alþjóðafélags lækna bindur lækn- inn með orðunum: „Ég mun hafa heilbrígði sjúk- linga minna í huga framar öllu öðru“ og í Alþjóðasiðareglum lækna er því lýst yfir, að „Lœkni bei; þegarhann veitir lœknisþjónustu, sem gæti haft þau áhrifað veikja líkamlegt og andlegt ástand sjúklings, að taka einungis mið af hagsmunum sjúklings “. Markmið læknisfræðilegra vísindarannsókna á mönnum á að vera, að bæta greiningar-, lækn- inga- og forvarnaaðferðir og auka skilning á orsökum sjúkdóma, uppruna þeirra og þróunar- ferli. Flestar greiningar-, lækninga- og forvamaað- ferðir sem eru í notkun nú á dögum, fela í sér hættur. Þetta á sér í lagi við læknisfræðirannsóknir. Framfarir í læknisfræði hvíla á rannsóknum, sem endanlega hljóta að einhverju leyti að fela í sér tilraunir á mönnum. í læknisfræðilegum vísindarannsóknum verður að gera glöggan greinarmun á þeim rann- sóknum sem í eðli sínu miða að greiningu á kvilla hins sjúka og lækningu hans og á læknisfræði- rannsóknum sem gerðar em í vísindaskyni ein- göngu og hafa ekki beint gildi fyrir sjúkdóms- greiningu eða meðferð þess sem undir rann- sóknina gengst. Sérstök aðgát skal höfð við vísindarannsóknir sem áhrif geta haft á umhverfið og virt skal velferð tilraunadýra. Þar eð nauðsynlegt er að beita á fólk niðurstöðum sem fást í rannsóknarstofutilraunum, til þess að auka vísindaþekkingu og að hjálpa þjáðu mannkyni, hefur Alþjóðafélag lækna gengið frá eftirfarandi ráðleggingum til leiðbeiningar öllum læknum, sem fást við læknisfræðirann- sóknir á mönnum. Þessar ráðleggingar ber að endurskoða um ókomna tíð. Lögð er áhersla á það að hegðunarreglunum er aðeins ætlað að vera til leiðbeiningar læknum um heim allan. Læknar eru ekki leystir undan ákvæðum refsi- og einka- málaréttar eða frá siðferðisskyldum, allt sam- kvæmt gildandi lögum í viðkomandi landi. I. Frumatriði 1. Læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum verða að fullnægja vísindareglum sem almennt eru viðurkenndar. Þær eiga að byggja á rannsóknarstofutilraunum og dýratilraunum sem gerðar em á fullnægjandi hátt og þær eiga að hvíla á ýtarlegri þekkingu á vísindabókmenntunum. 2. Aætlun og framkvæmd hverrar tilraunar á mönnum ætti að skilgreina mjög ljóst í rann- sóknarreglum. Þær reglur skal senda til umfjöll- unar í óháðri nefnd sem sérstaklega er skipuð í þessu skyni og er nefndinni ætlað að veita umsögn og leiðbeiningar. Nefndin skal vera óháð rann- sóknaraðilanum og þeim sem kostar rannsókn- ina. Þessi óháða nefnd skal starfa í samræmi við lög og reglur þess lands, þar sem rannsóknin fer fram. 3. Læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum ættu þeir einir að hafa með höndum, sem hafa fullnægjandi vísindalega fæmi og vinna undir eftirliti læknis með klíníska hæfni. Ábyrgðin á velferð þess sem undir tilraunina gengst verður ávallt að vera hjá lækninum. Hún verður aldrei lögð á þátttakandann, jafnvel þó hann hafi gefið samþykki sitt. 4. Læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum verða ekki lagalega réttlættar nema því aðeins að mögulegur ávinningur vegi þyngra á metunum en sú hætta sem þátttakendunum er búin og fólgin er í rannsókninni. 5. Undanfari allra læknisfræðilegra vísinda- rannsókna sem fela í sér rannsóknir á mönnum, ætti að vera ýtarlegur samanburður á mati á þeirri fyrirsjáanlegu áhættu sem þátttakanda er búin og þeim hagsbótum sem ætla má að falli viðkomandi manni eða öðrum í skaut. Umhyggja fyrir hags- munum viðkomandi manns verður ávallt að ríkja yfir þörfum vísindanna og samfélagsins. 6. Ávallt ber að virða rétt mannveru sem gengst undir vísindarannsókn, til þess að vernda óskert ástand sitt. Allrar varúðar skal gætt í því skyni að virða einkalíf og að draga úr áhrifum rannsóknar á andlega og líkamlega reisn og á skapgerð þátttakandans. 7. Læknar skyldu forðast að eiga aðild að vísindarannsóknum á mönnum nema þeir séu þess fullvissir að hægt sé að segja fyrir um þá hættu sem felst í rannsókninni. Læknar ættu að stöðva hverja þá rannsókn sem leiðir í ljós að hætturnar eru meiri en hugsanlegt gagn af rannsókninni. 8. Þegar læknir birtir niðurstöður rannsókna sinna er hann skyldur að standa vörð um ná- kvæmni þeirra. Skýrslur um tilraunir sem ekki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.