Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1995, Page 76

Læknablaðið - 15.02.1995, Page 76
186 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 íðorðasafn Fulminant sepsis Þórir Helgason, læknir, ósk- aði eftir umfjöllun um hugtakið fulminant sepsis og nýrri tillögu að íslensku heiti. Orðið sepsis er komið úr grísku og merkti upphaflega rotnun, enda var ígerð í sári upphaflega talin stafa af rotnun vefja. Sepsis er nú heiti á fyrirbæri sem nefnist graftarsótt í íðorðasafni lækna og er þar skilgreint þannig: Svœsið sótthitaástand afvöldum graftarsýkla, með eða án blóð- eitrunar. Orðið fulminant finnst á öðrum stað í safninu og talið merkja svæsinn. Samkvæmt þessu verður fulminant sepsis að fá heitið svæsin graftarsótt. Engu að síður er full ástæða til að taka fyrirbærið sepsis ásamt skyldum orðum og hugtökum, svo sem bacteremia, pyemia, septicemia og toxemia, til vand- legrar skoðunar. Nefna má að enska lýsingar- orðið fuiminating er komið af latneska nafnorðinu fulmen sem merkir elding. Orðabók Arnar og Örlygs gefur merking- arnar skyndilegur, alvarlegur, ofsabráður, svæsinn, en önnur tiltæk ensk-íslensk orðabók til- greindi merkinguna þrumandi. I læknisfræðiheitum er latneska lýsingarorðið fulminatus oftast notað um einkenni eða veikindi sem eru allt í senn: skyndileg, hraðfara, mikil og alvarleg. Bacteremia (bacteriemia) I B-kaflanum tilgreinir Ið- orðasafnið einungis þýðinguna gerlablóðsmit, en í S-kaflanum, í athugasemd við septicemia, er nefnd þýðingin bakteríudreyri. Rétt er að geta þess að B-heftið lækna 62 var gefið út í október 1986, en S-heftið í febrúar 1989. Á þess- um tíma hefur því farið fram einhver endurskoðun. Breyt- inguna má tímasetja enn nánar með því að skoða athugasemd við pyemia í P-heftinu, sem kom út í september 1988, en þar er bacteremia enn nefnd gerla- blóðsmit. Læknisfræðiorðabók Stedman’s skilgreinir bacterem- ia þannig: The presence of via- ble bacteria in the circulating blood. Það að lífvænlegar bakt- eríur séu í blóðrás. Skilgreining hinnar miklu alþjóðlegu orða- bókar Wiley’s í læknisfræði og líffræði, er nánast samhljóða: The presence of bacteria in the blood. Það að bakteríur séu í blóðrás. Segja má að skilgrein- ing Stedman’s sé ívið nákvæm- ari. Ef vel ætti að vera hefði skil- greining einnig átt að fylgja þýð- ingu íðorðasafnsins. Dreyri er fornt heiti á blóði, fyrst og fremst blóði sem rennur úr sári. Orðsifjabókin rekur skyldleika til ákveðinna orða í fornensku og fornháþýsku sem notuð eru um drjúpandi vökva. í læknisfræðiheitum kemur dreyri til dæmis fyrir í dreyra- sýki (hemophilia) og í natríum- dreyri (natremia). Aftur má vekja athygli á því að þýðingar Iðorðasafnsins hafa verið í stöð- ugri endurskoðun. Þannig birt- ist heitið chlorenúa í C-heftinu í mars 1987 án þýðingar, en með skýringunni: Pað að ofmikið er af klóríðum í blóði, kalcmia birtist sem blóðkalíumhækkun í K-heftinu, sem kom út í nóv- ember 1987, og natremia loks sem natríumdreyri í N-heftinu í apríl 1988. Pyemia (pyohemia) Pyon er kontið úr grísku og merkir gröftur, en haima blóð. Pyemia nefnir íðorðasafnið blóðígerð og útskýrir þannig: Sjúkdómsástand af völdum graftarsýkla í blóði, sem mynda útsœðisígerð þar sem þeir stöðv- ast. Fyrrnefndar orðabækur Stedman’s og Wiley’s útskýra á svipaðan hátt: Septicemia due to pyogenic organisms causing multiple abscesses. Og Sept- icemia caused by pyogenic bacteria and thus frequently as- sociated with widespread abscesses. Sem beinar þýðingar á þessu heiti, pyemia, mætti nota graftarblóð, graftarblæði eða graftardreyra. Septicemia Iðorðasafnið tilgreinir heitið blóðeitrun og útskýrir þannig: Heilkenni sem einkennist af heiftarlegri bakteríusýkingu með verulegri innrás baktería frá sýkingarhreiðri í blóð- straum. Skilgreiningin í orða- bók Stedman’s er ekki alveg eins tilkomumikil: Systemic dis- ease caused by the multiplication of microorganisms in the circu- lating blood. Almennur sjúk- dómur sem stafar af fjölgun (vexti) sýkla íblóðrás. Orðabók Wiley’s tekur heldur dýpra í ár- inni: Severe generalised in- fection resulting from hemato- genous dissemination of patho- genic microorganisms and their toxins. Alvarleg, útbreidd sýk- ing sem stafar af blóðborinni út- breiðslu sýkla og eiturefna þeirra. Jóhann Heiöar Jóhannsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.