Læknablaðið - 15.02.1995, Side 82
190
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Lyfjamál 36
Frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
og landlækni
Um ávísun eftirritunar-
skyldra lyfja
Rannsóknastofa í lyfjafræði
við Háskóla íslands vakti ný-
lega athygli á því, að á árunum
1990-1993 hafi komið sex
dauðsföll til rannsóknar í Rann-
sóknastofu í lyfjafræði þar sem
taka mebúmals var annaðhvort
aðaldánarorsök eða meðverk-
andi dánarorsök. í erindinu er
auk þess bent á, að notagildi
mebúmals sé nú orðið lítið eða
ekki neitt. Einnig var vakin at-
hygli á því, að á liðlega tveggja
ára tímabili (maí 1992- septem-
ber 1994) hafi komið fimm
dauðsföll til rannsóknar í Rann-
sóknastofu í lyfjafræði þar sem
taka metadóns var annaðhvort
meðverkandi dánarorsök eða
aðaldánarorsök og að slík
dauðsföll voru áður nánast
óþekkt.
Lyfjaeftirlit ríkisins gerði af
þessu tilefni athugun á lyfjaávís-
unum á liðnu ári þar sem
mebúmal er ávísað, en lyfið er
eftirritunarskylt. Við þá athug-
un kom í ljós að fyrstu mánuði
ársins eru um 55% ávísananna
frá einum og sama lækninum. I
apríl hætti læknirinn nær alveg
að ávísa lyfinu og fækkaði þá
ávísunum á lyfið um helming úr
60-70 á mánuði í um 30. Sala
lyfsins hefur farið minnkandi
frá ári til árs. Salan var um
33.000 töflur árið 1989, en um
18.000 töflur á árinu 1994.
Lyfjaeftirlit ríkisins gerði
einnig athugun á lyfjaávísunum
á liðnu ári þar sem metadón er
ávísað, en lyfið er eftirritunar-
skylt. Við þá athugun kom í ljós
að notkun lyfsins virðist nokkuð
stöðug, það er sömu einstak-
lingarnir fá lyfið nokkuð reglu-
lega. Alls voru seldar frá heild-
sala á milli 9 og 10.000 töflur frá
árinu 1989. Um 70% voru af-
greiddar frá apótekum en um
30% notaðar á sjúkrahúsum.
Stærsti hluti notenda eru ein-
staklingar fæddir 1950 eða fyrr
og fær einn þeirra 25% af því
magni sem afgreitt er frá apó-
tekum. P>að vakti athygli lyfja-
eftirlitsins við þessa skoðun að
stöku lyfjaávísun er fyrir ein-
staklinga mun yngri eða fædda
1960 eða síðar.
Ábendingum Rannsókna-
stofu í lyfjafræði um lyfið
mebúmal var komið á framfæri
við framleiðanda sérlyfsins
Mebúmalnatríum, 100 mg, töfl-
ur sem er eina lyfið sem hefur
verið skráð hér á landi og inni-
heldur umrætt efni. Framleið-
andinn féllst á að sækja um af-
skráningu sérlyfsins og var það
afskráð frá 1. janúar 1995.
Ekki er talin þörf á sérstökum
aðgerðum varðandi lyfið meta-
dón, en lyfið er eins og að fram-
an greinir eftirritunarskylt og
því auðvelt að fylgjast með ávís-
unum á það. Læknar eru þó
hvattir til aðhalds og varkárni
þegar um ávísun á eftirritunar-
skyld lyf er að ræða og á það
ekki aðeins við um þetta lyf
heldur einnig önnur eftirritun-
arskyld lyf.
\