Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1995, Page 87

Læknablaðið - 15.02.1995, Page 87
P4ÓW Zoviplus ____ ■ ijljlj IUjJ ÚRUGGT, ÁHRIFARÍKT, ÞÆGILEGT LAUSNARTÚFLUR TIL INNTÚKU - sem má gleipa heilar eða leysa upp i 1/2 glasi af vatni ÁBENDING: RISTILL [ HERPES ZDSTER 1: Zoviplus (acíklóvír) töflur 800 mg 5 sinnum á dag í 7 daga - marktœk minnkun á bráðum einkennum og sárið grœr fyrr (1 ) - marktœk minnkun á langvinnum ristiltengdum verkjum ( 2,4 ) Wellcome 0 Stefán Thorarensen - marktœk minnkun á alvarlegum augnkvillum (3,4) - betri liorfur varðandi ristiltengda lömun (5) TILVITNANIR: /. Morton, PNewZealand J Med.,1989:Vol. 102; 93-95 2. Crooks, RJ.Scan.J.InfDis.1992: Supl. 80, 62-69 3. Cobo, M.AM.J. Med. 1988;Vol.85/Supl. 2A); 90-93 4. Mc Gill, JI. BMJ. 1994;Vol. 309,1124 5. Lyngberg.K Ugeskr. Lœger, 1990:152/17;12-14 Zoviplus (Wellcome, 930149).LAUSNARTÖFLUR TIL INNTÖKU; J 05 A B 01 R E. Hver lausnartafla til inntöku inniheldur: Aciclovirum INN 200 mg, 400 mg eða 800 mg.Eiginleikar: Aclklóvír er gúanínnúkleósíð, sem eftir fosfórýleringu í veirusýktum frumum hindrar DNA-nýmyndun frumunnar. Lyfið frásogast um 20% frá meltingarvegi. Helmingunartími í blóði er um 3 klst. Þéttni í heilamænuvökva er um helmingur af blóðþéttni. Um 75% umbrotnar í óvirk efni. Ábendingar: Herpes simplex sýkingar í húð, þ.m.t. herpes genitalis. Langtlma bælimeðferð gegn slendurteknum herpes simplex sýkingum hjá fólki með eðlilegt ónæmiskerfi. Alvarlegar herpes zoster sýkingar, bæði hjá ónæmisbældum og hjá sjúklingum með eðlilegt ónæmiskerfi. Hlaupabóla, ef búist er við alvarlegri sýkingu, einkum hjá fullorðnum og ónæmisbældum sjúklingum. Til að fyrirbyggja Herpes simplex sýkingu hjá ónæmisbældum sjúklingum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf: Fósturskemmandi áhrif hafa sést hjá rottum eftir gjöf mjög hárra skammta. Lyfið á því ekki að nota hjá barnshafandi konum nema brýna nauðsyn beri til. Ekki er vitað hvort lyfið fer yfir fylgju eða útskilst í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Nýrnabilun hefur sést. Ógleði, uppköst, hækkun á lifrarenzýmum og fækkun á blóðfrumum. Útbrot og hiti hafa komið fyrir. Einkennum frá miðtaugakerfi svo sem rugli, skjálfta og breytingum á heilalínuriti hefur verið lýst meðan á notkun lyfsins stendur. Milliverkanir: Próbenecíð lengir helmingunartíma lyfsins. Skammtastærðir handa fullorðnum: Herpes simplex sýkingar ihúð: 200 mg á 4 klst. fresti að deginum til, þ.e.a.s. fimm sinnum á dag. Hefja ber meðferð sem allra fyrst eftir að einkenni koma fram. Bælimeðferð hjá fullorðnum: 800 mg á dag gefið í 2-3 skömmtum. Þennan skammt má reyna að lækka smám saman (400 mg á dag, gefið í 2-3 skömmtum. Ráðlegt er að hætta meðferð með 6-12 mánaða millibili, þar sem sjúkdómsmyndin getur breyst og þörf fyrir bælimeðferð horfin. Við nýrnabilun (kreatlnín klerans <10 ml/mín.): 200 mg tvisvar sinnum á dag. Alvarlegar herpes zoster sýkingar: 800 mg 5 sinnum á sólarhring í eina viku gefið sem töflur eða mixtúra. Hlaupabóla: 800 mg 4-5 sinnum á sólarhring. Skammtastærðir handa börnum: Fyrirbyggjandi meðferð gegn herpes simplex sýkingum hjá sjúklingum með ónæmisbælingu: Börn yfir 2 ára: 200 mg fjórum sinnum á dag. Börn 3 mánaða til 2 ára: 100 mg fjórum sinnum daglega. Lyfið skal gefa á 4 tíma fresti meðan barnið er vakandi. Alvarlegar herpes simplex sýkingar í húð og slímhúð: Börn 3 mánaða til 2 ára: 100 mg fimm sinnum á dag. Börn eldri en 2 ára: 200 mg fimm sinnum á dag. Hlaupabóla (sé búist við alvarlegri sýkingu): Börn 2-12 ára: 20 mg/kg fjórum sinnum á dag, hámarksskammtur 800 mg/kg fjórum sinnum á dag. Framamgreinda skammta þarf að lækka við skerta nýrnastarfsemi. Athugið: Lausnartöflurnar má gleypa heilar eða leysa þær upp í 1/2 glasi af vatni fyrir inntöku. Pakkningar: Lausnartöflur til inntöku 200 mg: 25 stk.(þynnupakkað) - verð kr. 4.813,-. Lausnartöflur til inntöku 400 mg: 56 stk.(þynnupakkað) - verð kr. 16.662,-. Lausnartöflur til inntöku 800 mg: 35 stk.(þynnupakkað) - verð kr. 18.876,-. Hver pakkning lyfsinS skal merkt: „Töflurnar má gleypa heilar eða leysa þær upp í 1/2 glasi af vatni fyrir inntöku.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.