Læknablaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 74
688
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Félag heila- og taugaskurðlækna:
Dr. Bjarni Jónsson og
dr. Friðrik Einarsson heiðraðir
Dr. Bjarni Jónsson og dr.
Friðrik Einarsson voru heiðr-
aðir þann 25. apríl síðastliðinn
fyrir ómetanlegt framlag í
þágu heila- og taugaskurð-
lækninga á íslandi. Athöfnin
fór fram um hádegisbil í Perl-
unni í hinu fegursta veðri.
Ávarp formanns
Garðars
Guðmundssonar
Góðir gestir og félagar í fé-
lagi íslenskra heilaskurðlækna.
A aðalfundi félagsins síð-
astliðið haust var ákveðið að
löngu væri orðið tímabært að
heiðra dr. Bjarna Jónsson og
dr. Friðrik Einarsson fyrir
þeirra ómetanlegu brautryðj-
endastörf í þágu sérgreinar-
innar og þess vegna erum við
hér saman komin.
Báðum þessum heiðurs-
mönnum hefur hlotnast ýmis
heiður og viðurkenningar um
dagana og er hér að bera í
bakkafullan lækinn að rekja
HeiÐURSFÍLAqi
mn>íkwU Mm ex rrAPfOTAi'
pR.m«n
FRIÐRIK 6INARSSON
ypIRLckNIR
MífUA V«SH> JjOBWN höWRSpími
I vrpuRkBNNMfi fysK AneiANLarr
FiwnLví ÍPAnu
haU-o?TUX£tfiM'UfecN4\
1
Heiðursskjal dr. Friðriks Einarssonar.
æviferil og afrekaskrá þeirra
því það hefur oft verið gert.
Það skemmtilega er að fer-
ill beggja á sér sterkan sam-
hljóm:
báðir voru yfirlæknar og sjálf-
kjörnir til að vera í forystu-
hlutverki,
báðir eru doctor med og skrif-
uðu báðir um stoðkerfið,
báðir hafa skrifað frásagna-
og minningabækur,
báðir tengdust Danmörku á
námsferli sínum,
báðir eiga þeir sér brjóstmynd
eða „búst“, en eins og annar
þeirra á að hafa sagt: „bara
stórkírúrgar fá búst“
og svo það sem sameinar okk-
ur hér í dag: báðir hafa unn-
ið ómetanlegt brautryðj-
endastarf í þágu nevrókír-
úrgíunnar á Islandi.
Mig langar að segja eina
sögu af Busch, þeim danska
heilaskurðlækni, sem allir Is-
lendingar þekktu í eina tíð og
var okkur íslendingum hjálp-
samur með að meðhöndla þá
sjúklinga, sem ekki gátu rann-
sakast eða skorist hér á landi.
Þegar Busch komst á aldur
hætti hann störfum á nevrókír-
úrgíunni á Rigshospitalinu og
kom þar aldrei síðar. Hann
hætti öllum afskiptum af
læknisfræði og hóf að stunda
Dr. Bjarni Jónsson.
Dr. Friðrik Einarsson og frú Ingeborg Einarsson.