Læknablaðið - 15.09.1998, Síða 82
696
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Frá landlæknisembættinu
Sjálfsvígsbylgjan meðal ungra karla
hefur ekki hjaðnað
Dánartíðtii af sjálfsvígum og sjálfsáverkum meðal karla 15-34 ára eftir héruðum á
100.000 íbúa.
1971-75 1976-80 1981-85 1986-90 1990-95
Reykjavík 14,9 32,6 24,7 32,2 21,2
Reykjanes 22,7 22,7 24,1 20,8 34,7
Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvaeðinu 16,1 25,4 22,0 17,7 38,3
Vesturland 0 0 14,4 7,7 51,0
Vestfirðir 11,5 9,9 0 10,3 11,7
Norðurland vestra 12,4 11,0 31,2 11,2 11,8
Norðurland eystra 21,5 22,9 34,2 26,2 27,2
Austurland 19,8 17,0 72,5 83,7 27,6
Suðurland 0 16,9 10,9 16,7 28,9
Allir 15,4 23,2 25,7 26,6 25,7
Frá árunum 1970-1975 hef-
ur orðið mikil fjölgun á sjálfs-
vígum meðal 15-34 ára karla.
Frá því að vera í miðjum hópi
Evrópubúa hvað varðar sjálfs-
vígstíðni, líkt og gildir um
heildartíðni sjálfsvíga í Evr-
ópu, eru Islendingar nú í þriðja
til fjórða sæti í aldurshópnum
15-34 ára.
Sjálfsvígsbylgja hófst rétt
fyrir 1980 og hefur ekki geng-
ið yfír ef á heildina er litið.
Bylgjan á Austurlandi hefur þó
fjarað nokkuð út og má að
öllum líkindum rekja það til
aðgerða landlæknisembættis-
ins ásamt góðum framgangi
héraðslæknis Austurlands. Til
Austurlands fóru geðlæknir,
sálfræðingur og prestur og áttu
þeir fjölmarga borgarafundi,
bæði með fullorðnum og ung-
lingum. Sjálfsvígsbylgjan hef-
ur nú borist til Vesturlands,
sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, Reykjaness og Suð-
urlands. Þrátt fyrir góðan ár-
angur á Austurlandi hefur sú
leið sem þar var farin ekki
verið valin í öðrum héruðum.
Menntamála- og Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneyti
hafa átt fundi með völdum
hópi starfsmanna úr fræðslu-
málageiranum víða um landið.
Að áliti landlæknis er brýnt að
eiga fundi með íbúum. Haft
hefur verið samband við hér-
aðslækna Reykjaness, Vestur-
lands og Suðurlands.
Eins og sést í meðfylgjandi
töflu er greinilegt að sjálfs-
vígstíðni hefur aukist meðal
15-34 ára karla eftir 1975.
Kannaðar hafa verið að-
stæður þeirra ungu karla sem
framið hafa sjálfsvíg á Austur-
landi og í Reykjavík (Wilhelm
Norðfjörð. Obirtar niðurstöð-
ur). í Reykjavík ber á vímu-
efnanotkun, fjölskylduvanda
og atvinnuleysi í sögu unga
fólksins, en síður ber á
þessum þáttum á Austurlandi.
I nágrannalöndum og víðar
hefur einnig orðið fjölgun á
sjálfsvígum meðal ungs fólks.
Athyglisvert er að í Svíþjóð er
tíðni sjálfsvíga meðal innflytj-
enda á aldrinum 15-18 ára
þrefalt hærri en meðal inn-
fæddra á sama aldri. Þessar
niðurstöður beina athyglinni
að þeim gífurlegu breytingum
sem orðið hafa á fjölskyldu-
mynstri og afleiðingum þess á
undanförnum 15-20 árum.
Eftir stendur að „Austurlands-
aðferðin“ dugði vel enda hafa
menn farið þá leið til dæmis í
Skandinavíu með góðum ár-
angri (1).
TILVÍSUN
1. Sylwander L. Bo upptill 18.
Stockholm: BRIS. 1998.