Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.1998, Side 12

Læknablaðið - 15.11.1998, Side 12
830 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Þrír reyndir sérfræðingar í geislagreiningu framkvæmdu úrlestur rannsóknanna. Metnar voru útlínur þvagvega og mat lagt á greiningar- hæfni rannsóknarinnar og heildargæði. Rannsóknin var framskyggn og tvíblind. Sama tegund skuggaefnis, styrkur og magn var notað í hvert sinn. Sama filmutegund var ávallt notuð. Samanburður var gerður milli þessara tveggja hópa. Niðurstöður: Aldursdreifing var sú sama milli hópanna. Flestum sjúklinganna í hópi A (76%) fannst undirbúningurinn óþægilegur. Ur þessum hópi töldu 12% sjúklinga að undirbúningur ylli miklum óþægindum. Langflestum í hópi B fannst undirbúningurinn þægilegur en engum að hann ylli miklum óþægindum. Enginn munur var á milli hópanna þegar mal var lagt á útlínur þvagvega, nema á þvagblöðru sem sást verr í hópi B. Loft í görnum var aðal truflanavaldur í hópi A en bæði loft og hægðir í hópi B. Gæði hreinsunar voru marktækt betri í hópi A. Enginn munur var milli hópanna á greiningarhæfni rannsóknanna. Lokaorð: Flreinsun þarma fyrir skuggaefn- isrannsóknir á þvagvegum valda talsverðum óþægindum fyrir sjúklinga og bæta ekki gæði rannsóknanna. Inngangur Frá því að farið var að gera skuggaefnis- rannsóknir af þvagvegum (intravenous uro- graphy) hefur hreinsun þarma verið talin nauð- synlegur undirbúningur og er svo víða enn. I eldri kennslubókum í geislagreiningu er þetta talinn sjálfsagður hlutur og er þessi þáttur rann- sóknarinnar lítt ræddur (1-4) hvað þá að getið sé heimilda fyrir nauðsyn hans. I seinni tíð hef- ur gætt efasemda um nauðsyn þessa undirbún- ings og hafa greinar birst þar að lútandi (5,6). Þrátt fyrir að hér hafi oft verið um mikla fyrirhöfn og stundum nokkurt álag (7) á sjúk- linga að ræða hafa aðeins örfáar rannsóknir birst um þetta efni. A myndgreiningardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, áður Borgarspítalan- um, hefur hreinsun þarma lengst af verið talin nauðsynlegur þáttur í undirbúningi sjúklinga. Við skuggaefnisrannsókn af þvagvegum á að vera hægt að sýna fram á líkamsgerð (anatom- ia) og sjúklegar breytingar innan þvagvega, séu þær til staðar (8). Eðlilegt verður að telja að slíkt sé reynt með þeim aðferðum sem nútíma tækni ræður yfir, þar með þarmahreinsun, sé slíkt nauðsynlegt. Hins vegar getur það varla talist réttlætanlegt að láta sjúklinga gangast undir þennan undirbúning ef það bætir ekki gæði rannsóknarinnar og þar með greiningar- möguleika. Markmið þessarar forspárrannsóknar var að athuga hvort sú þarmahreinsun sem beitt var við þvagvegarannsóknir á Borgarspítalanum bætti gæði og greiningarmöguleika þessarar rannsóknar. Samhliða voru viðbrögð sjúklinga við undirbúningnum könnuð. Efniviður og aðferðir Rannsóknin var framkvæmd á myndgrein- ingardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Allir utan- spítalasjúklingar sem bókaðir voru til þvag- vegarannsókna á sjö mánaða tímabili voru tald- ir með í þessari athugun. Bráðarannsóknir voru undanskildar. Venjubundin þarmahreinsun var fólgin í neyslu fljótandi fæðis sólarhring fyrir rann- sókn. Klukkan 8:00 sama dag var tekinn einn poki af Salilax hrærðu í vatni. Klukkan 12:00 var annar poki tekinn og tvær töflur af Toilax og klukkan 18:00 voru teknar tvær töflur af Toilax. Að morgni rannsóknardags var fastað fjórar klukkustundir fyrir rannsóknina. Þá mátti ekki reykja né tyggja tyggigúmmí minnst eina klukkustund fyrir rannsóknina. Sjúklingum var fyrirfram skipt með tilvilj- anaúrtaki í tvo hópa, A og B. Hópur A fékk venjubundin fyrirmæli um þarmahreinsun og annan undirbúning. Hópur B fékk fyrirmæli um að vera á fljótandi fæði frá kvöldinu fyrir rannsóknina. Fyrir rannsóknina voru allir sjúklingarnir spurðir að því hvort þeir hefðu fengið leiðbein- ingar um undirbúninginn fyrir rannsóknina og farið eftir þeim. Einnig var beðið um mat á undirbúningnum með því að krossa við aðeins eitt af eftirtöldu: þœgilegur vœg óþœgindi mikil óþœgindi óbœrilegur Allar rannsóknirnar voru framkvæmdar á hefðbundinn hátt með pressu. Röntgentæknar sem framkvæmdu rannsóknirnar vissu ekki hvorum hópnum sjúklingurinn tilheyrði. Reynt var að tryggja svo einsleitar rannsókn- ir sem mögulegt var með því að nota sömu rannsóknarstofu og sömu filmutegund við allar rannsóknirnar.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.