Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
839
Niðurstöður: Áreiðanleiki Edinborgar
þunglyndiskvarðans og foreldrastreitukvarðans
var staðfestur. Meðaltal þunglyndiseinkenna á
Edinborgarkvarða var 6,5. Um 14% kvennanna
upplifðu mikil þunglyndiseinkenni (þunglynd-
isstuðull >12). Fylgni var á milli þunglyndis-
einkenna og streitu í foreldrahlutverki (p<
0,01). Tíðni mikilla þunglyndiseinkenna var
marktækt meiri þegar barn var óvært (p<
0,0001), þegar móðir hafði áhyggjur af heilsu-
fari barns (p<0,0001), þegar menntun var
minni (p<0,005) og ef mæður voru einstæðar
(p<0,002).
Ályktanir: Tíðni þunglyndiseinkenna hjá
íslenskum konum tveimur til þremur mánuðum
eftir fæðingu virðist jafnalgeng og í öðrum
vestrænum löndum. Algengi einkenna og
alvarleiki þeirra eru háð foreldrastreitu, óværð
ungbarna og félagslegri stöðu mæðra.
Inngangur
Mikil vanlíðan mæðra fyrstu vikur og mán-
uði eftir fæðingu er vágestur sem stingur í stúf
við hugmyndir manna um hamingjuríkt tímabil
nýorðinna foreldra. Meðal þátta sem valda van-
líðan hafa þunglyndi og streita í foreldrahlut-
verki verið rannsökuð hjá mæðrum með ung-
börn (1-3). Vanlíðan nýbakaðra mæðra getur
verið margvísleg og er í rauninni samnefnari
sértækari hugtaka, sem hægt er að mæla (1,4).
Rannsóknir í vestrænum löndum sem spanna
um þrjá áratugi hafa leitt í ljós að ein kona af
hverjum 10 verði þunglynd (bil 10-15%) innan
þriggja mánaða eftir fæðingu (5). Tíðni þung-
lyndis frá fjórum vikum eftir fæðingu fram til
sjötta mánaðar er þrisvar sinnum algengari en á
öðrum tímum ævinnar, en minnkar marktækt
með tímanum. Tæpum þriðjungi kvenna batnar
sjálfkrafa (6-8). Konur, sem þarfnast meðferð-
ar vegna langvarandi og/eða endurtekins þung-
lyndis, rekja upphaf sjúkdómsins oft til tíma-
bilsins eftir fæðingu og virðist það hafa áhrif á
þróun þunglyndissögu þeirra (6).
Samskiptaerfiðleikar við maka, meiri óværð
barnsins og seinkun á vitsmuna- og félags-
þroska þess tengjast þunglyndi mæðra (9-13).
Þættir sem auka líkur á þunglyndi eftir fæðingu
eru saga um þunglyndi, þunglyndi á meðgöngu-
tíma, óráðgerð þungun, það að hafa barnið ekki
á brjósti, atvinnuleysi og að vera einstæð móðir
(14-16). Eftir fæðingu stuðla barnatengdir
þættir eins og óværð og minni hreyfiþroski að
þunglyndi mæðra (17,18).
Þótt þunglyndi eftir fæðingu sé algengt og
erfiður sjúkdómur fyrir sumar konur og fjöl-
skyldur þeirra, þá er það sjaldan greint að
frumkvæði heilbrigðisstétta. Fáar konur leita
sér hjálpar vegna vanlíðunar (19). I nágranna-
löndum hefur þunglyndiskvarði, sem þróaður
var í Edinborg (Edinburgh Postnatal Depres-
sion Scale, EPDS)*, verið notaður í heilsu-
gæslu ásamt viðtölum og hefur bætt úr brýnni
þörf í kembileit að þunglyndiseinkennum og
við greiningu þunglyndis (20-22). Með Edin-
borgarkvarðanum má greina tvöfalt fleiri konur
sem eru þunglyndar en fundist hefðu með
hefðbundnum aðferðum (5,15,20).
Samband þunglyndis og streitu hefur verið
staðfest í tvíhliða skýringarlíkani á þunglyndi
(23). Tengsl eru á milli þunglyndis og aðlögun-
arerfiðleika að foreldrahlutverki þegar ungbörn
eru óvær (2,3,9,17). Þunglyndar mæður sem
skynja barn sitt á neikvæðan hátt vegna óværð-
ar eru líklegri en aðrar til að mynda óörugg
tengsl við barnið (9,17,18,24). Óörugg tengsl
eru talin geta tengst seinni vitsmuna- og félags-
þroska barna, einkum sveinbarna, ef móðirin er
úr lægri þjóðfélagstétt (10,11).
í flestum rannsóknum á streitu foreldra hafa
einungis samskipti móður og barns verið at-
huguð. Mæður virðast aðlagast móðurhlutverk-
inu á mislöngum tíma og aldur og félagslegar
aðstæður hafa marktæk áhrif á það (25-28).
Erfiðar félagslegar aðstæður leiða að jafnaði til
þess að mæður upplifa meiri streitu og hafa
meiri tilhneigingu til þunglyndis eftir fæðingu
en aðrar konur (6,10,15).
Tíðni þunglyndiseinkenna hjá íslenskum
konum eftir fæðingu og tíðni óværðar ung-
bama er ekki þekkt. Samband á milli þung-
lyndiseinkenna og foreldrastreitu ásamt óværð
ungbarna hefur heldur ekki verið rannsakað
fyrr hjá íslenskum mæðrum. Þá hefur áreiðan-
leiki Edinborgar þunglyndiskvarðans og for-
eldrastreitukvarðans (Parent Stress Index -
Short Form, PSI/SF) ekki verið kannaður í þýði
heils árgangs mæðra. Sú rannsókn sem hér er
lýst (landskönnunin) var fyrsti þáttur stærri
rannsóknar sem lauk árið 1996 (1). Gerð var
þversniðskönnun til að að varpa ljósi á tíðni
* Sérprentun á Edinborgar þunglyndiskvarða ásamt greinar-
gerð fæst hjá Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði, Eirbergi,
Eiríksgötu 34, 101 Reykjavík, sfmi 525 4961, bréfsími 525
4963.