Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Page 36
34
UMRÆÐA
Fyrir 1970 var reynt að gefa eitt krabba-
meinslýf i einu við lungnakrabbameini, en
með litlum árartgri.8 3 Veruleg framför varð
í lyfjameðferð krabbameins þegar menn fóru
að gefa tvö eða fleiri krabbameinslyf sam-
tímis. Var þá reynt að velja saman lyf með
mismunandi verkunarmáta og hjáverkanir,
þannig að fengist kröftugri meðferð án þess
að fá slæmar aukaverkanir.4 Siðan hefur
komið í ljós að fjöllyfjameðferð ásamt
geislameðferð er árangursríkari en lyfjameð-
ferð eingöngu.5 17 Einkum á þetta við þegar
sjúkdómurinn er ekki útbreiddur. Enn sem
komið er, verður lyfja- og geislameðferð við
smáfrumukrabba í lunga að teljast til fróun-
ar, hún læknar ekki sjúkdóminn, en bætir oft
líðan og lengir líf. Reynt hefur verið að gefa
mjög kröftuga lyfjameðferð með þremur
lyfjum, CTX, VCR, doxorubicin ásamt kröft-
ugri geislun, bæði á upprunalega æxlið og
meinvarp og auk þess gefin fyrirbyggjandi
geislun á heila. Var þetta gert í þeim tilgangi
að reyna að lækna sjúkdóminn.12 Tilraun
þessari var hætt eftir að kom í ljós að um
20% sjúklinganna létust af meðferð án þess
að varanleg lækning fengist hjá þeim sem
eftir lifðu.14 Einhverjar vonir eru samt
bundnar við að fleiri lyf gefin saman geti
bætt árangur.
Sjúklingar með smáfrumukrabba i lungu
á Landsnítala fá nú lyfjameðferð með 6
lyfjum CTX, MTX, VCR, adriamycin, procar-
bazine, 6-mercaptopurine auk geislameðferð-
ar.1
Viðast hvar er nú notað CTX og oftast
einnig VCR i fjöllyfjameðferð við smáfrumu-
krabba í lungu.7
Tafla III sýnir samanburð á mismunandi
f j öllyf j ameðf erð.
Sé almennt ástand sjúklinga slæmt, aðrir
sjúkdómar fyrir hendi og aldur hár, er hætt
við að árangur meðferðar verði lélegur. Átti
þetta sérstaklega við um þann sjúkling sem
ekki svaraði meðferð.
I dag koma því til greina tvennskonar sjón-
armið við fjöllyfja- og geislameðferð á smá-
frumukrabba í lungu. 1 fyrsta lagi meðferð
til fróunar þar sem reynt er að haga meðferð
svo að hjáverkanir séu í lágmarki, sjúkling-
ur þoli vel meðferðina og haldist sem mest
utan sjúkrahúss. 1 öðru lagi heldur áfram
leitin að meðferð sem læknar sjúkdóminn.
Við slíka meðferð yrðu menn vitanlega sátt-
ari við að þola alvarlegar aukaverkanir og
jafnvel að stöku sjúklingar létust af völdum
meðferðar.
SUMMARY
Combined cliemotherapy and radiation of small-
cell carcinoma of the lung.
Eleven patients with small-cell csircinoma of
the lung were treated with chemotherapy
(cyclophosphamid, vincristine and methotrex-
ate) in a sequential fashion with radiation of
the primary tumor. Complete regression of
tumor was obtained in 3 patients, partial re-
mission in 4, static diseases in 3 and the disease
continued to progress in one patient. Mean
survival was 58,3 weeks for patients with com-
plete remission, 31 weeks for those with partial
remission, 24 weeks with static disease and 7
weeks for the patient with progressive disease.
The mean remission length was 41,3 weeks for
those with complete remission, 15,3 weeks for
partial remission and 15,3 weeks for those with
static disease. Mean hospital stay for these
groups were 7,5, 12,7, 6 and 3 weeks respecti-
vely. Mean survival for the 10 patients who
responded to therapy was 37,1 weeks. Four
patients completed the treatment course,
the other,- had to stop either due to toxi-
city or treatment failure. No one died as a
result of therapy. This therapy is effective as a
pallative therapy, but none of the patients had
a permanent cure.
TABLE III. Combined chemotherapy for small cell cancer of the lung. Comyarison of six studies.
Stiudy* Response rate % Patient number Median suj'vival (weeks)
CTX + VCR + MTX + XRT (5) 85 (55 CR) 26 38
CTX +■ VCR + XRT (H) 73 (35 CR) 39 36
CTX + VCR + ADR + BLE (6) 76 (21 CR) 39 39
CTX + VCR + PCZ + PRD** (17) 93 (54 CR) 28 40
CTX + VCR + ADR + XRT (12) 100 (95 CR) 21 44
Present Study 91 (27 CR) 11 34
XRT: Radiation Therapy. ADR: Adriamycin. BLE: Bleomycin. PCZ: Procarbazine. PRD: Prednisolon.
CR: Complete remission.
* See references at the end of the article.
** j.5 patients had XRT, 13 patients did not have XRT.