Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Blaðsíða 69
67
og börn, þeir sem lögðust inn á barnadeild.
Yfirleitt eru nokkuð hreinar línur þar á
milli. Mörkin eru yfirleitt sett við 12 ár á
barnadeild, þótt einstaka eldri fari þangað
inn, sérstaklega þeir sem lágvaxnir eru. 13
ára og eldri eru yfirleitt lagðir inn á hand-
læknisdeildina.
Börn eru samkvæmt þessari flokkun 215.
Drengir voru 127 (59.1%), en stúlkur 88
(40,9%). Fullorðnir voru 114, langflestir
karlmenn eða 83 (72,8%) og konur 31
(27,2%) (Mynd 1).
Þegar athuguð er aldursdreifing þá kemur
það ekki á óvart, að brunar eru lang-algeng-
astir hjá börnum í yngstu aldursflokkunum.
Langflest börn voru á aldrinum 1—2ja ára
og meira en helmingur barna sem lögð eru
inn vegna brunasára, voru á aldrinum 0—2ja
ára (Tafla I). Þegar kemur upp í efri ald-
urshópa, þá minnkar tiðni jafnt og þétt.
Hjá fullorðnum voru það einnig þeir yngri
einstaklingar sem helst brenna sig og fækk-
ar þeim eftir því sem aldurinn færist yfir
þá, nema eftir sjötugt eykst tíðnin aðeins.
2. Vettvangur slysa: Langflest börn
brenndu sig i heimahúsi eða 186 af 215
(86,5%), sjá töflu n. Fullorðnir hlutu bruna-
sár frekar á vinnustað. Af 114 brenndu 50
sig á vinnustað (43,9%) og 40 í heimahúsi
(35.1%). Þegar litið er á allan hópinn, þá
brenndu sig 226 í heimahúsi (68,7%) og 50 á
vinnustað (15,2%).
3. Orsakir bruna: 17 börn brenndu sig á
eldi (7,9%) og færri hlutu snertibruna, t.d.
af heitum plötum eða straujárnum (4,7%)
og átta hlutu rafmagnsbruna (3,7%). Lang-
flest börn brenndu sig á heitum vökvum eða
162 (75.3%). Aðstæður voru langoftast mjög
svipaðar. Mjög algengt var að heitir vökvar
helltust yfir börn, sem voru að flækjast á
gólfinu, aðallega í eldhúsum. Þetta er mjög
oft kaffi eða sjóðandi vatn eða súpur úr
pottum. Einnig var mjög algeng orsök, að
börn teygðu sig upp á borð í ílát með heit-
um vökvum og helltu yfir sig. Þetta voru
langoftast yngstu aldurshóparnir. Kom þetta
oftast fyrir á annatímum í sambandi við
matseld, í hádeginu og sérstaklega seinni
part dags um kvöldmatartímann. Einnig var
nokkuð algengt að börnin brenndu sig í baði,
annað hvort að þau voru sett í of heitt bað
Brunar á Landspitala
MYND 2
TAFLA II. Vettvangur brunaslysa.
Börn N % Fullorðnir N % Alls N %
Heimahús Vinnustaður Leikvangur Hverasvæði Umferðaslys Aðrir staðir Ekki vitað 186(86.5) 8(3,7) 3(1.4) 15(7.0) 3(1.4) 40(35.1) 50(43.9) 5(4.4) 5(4.4) (2(1.8) 12(10.5) 226(68.7) 50(15.2) 13(4.0) 9(2.7) 2(0.6) 26(7.9) 3(0.9)
Samtals 215(100.0) 114(100.1) 329(100.0)
TAFLA III. Orsakir bruna.
Börn N % Fullorðnir N % Alls N %
Heitir vökvar 162(75.3) 33(28.9) 195(59.3)
Eldur 17(7.9) 32(28.1) 49(14.9)
Snertibruni 10(4.7) 3(2.6) 13(4.0)
Rafmagn
(lág spenna) 8(3.7) 1(0.9) 9(2.7)
(há spenna) 3(2.6) 3(0.9)
Bráðin feiti 7(3.3) 4(3.5) 11(3.3)
Ertandi efni 4(1.9) 8(7.0) 12(3.6)
Sprenging
(bensín) 2(0.9) 8(7.0) 10(3.0)
(gas) 1(0.5) 17(14.9) 18(5.5)
Annað 4(1.9) 5(4.4) 9(2.7)
Samtals 215(100.1) 114(99.9) 329(99.9)
eða þá að þau skrúfuðu sjálf frá heitu vatni.
Nokkur duttu aftur fyrir sig í heita þvotta-
bala. (Tafla III).
Fullorðnir brenndu sig einnig oftast á
heitum vökvum eða 33 (28,9%). Einnig voru
mjög margir, sem brenndu sig á eldi eða 32
(28,1%). Stór hópur brenndi sig í gasspreng-
ingu eða 17 (14,9%). Af öllum hópnum
brenndu 195 sig á heitum vökvum (59,3%)
og 49 brenndu sig á eldi (14,9%). Aðrar
orsakir voru mun sjaldgæfari.
h. Ástœður fyrir innlögnum: Hjá börnum
var oft erfitt að meta ástæður fyrir innlögn.