Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Blaðsíða 33

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Blaðsíða 33
31 staklega er það sértækni spurningalistanna, sem var lakari, þ.e.a.s. þeir greina fleiri heil- brigða sem sjúka. Sé litið á greiningarhæfni spurningalist- anna eftir kynjum, kemur í ijós að misgrein- ingartíðni þeirra beggja er hærri hjá konum. G.H.Q. við markgildið 2/3 hefur misgreining- artíðni karla 14,0%, en kvenna 28,6% og C.M.I. við markgildið 7/8, misgreiningartiðni karla 16,3%, en kvenna 20,4%. Líkurnar á því að sá, sem hefur gildið 8 eða hærra á C.M.I. sé veikur eru 73,0%, en líkurnar á því að sá, sem hefur gildið 7 eða lægra sé veikur eru 12,7%. Líkurnar á því að sá, sem hefur gildið 3 eða hærra á G.H.Q. sé veikur eru 68%, en líkurnar á því að sá, sem hefur gildið 2 eða lægra sé veikur eru 15%. UMRÆÐA Þessar niðurstöður benda til að báðir spurningalistarnir C.M.I. og G.H.Q., séu vel nothæfir til geðlæknisfræðilegra hóprann- sókna hérlendis, en best sé að nota mark- gildi, sem eru nokkru lægri heldur en þau markgildi, sem notuð hafa verið erlendis. Misgreiningartíðni beggja spurningalistanna er hér meiri hjá konum, en þetta er gagn- stætt því, sem virst hefur sumsstaðar annars staðar.7 Fram kemur sú tilhneiging að þeir, sem eru rétt greindir með öðrum listanum, séu lika rétt greindir með hinum og svo öfugt, að þeir, sem eru rangt greindir með öðrum listanum séu rangt greindir með hinum. Virðist svo að ekki sé munur á því hverjir greinast rétt með öðrum listanum fremur en hinum og það sé heldur þannig að þeir mis- greini báðir sama fólkið. Nánari sérkenni þeirra, sem greinast sérlega illa með þessum spurningalistum verða þó ekki ráðin hér. Þar sem G.H.Q. er spurningalisti, sem sér- staklega var gerður til geðlæknisfræðilegra hóprannsókna hefði mátt ætla að árangur með honum yrði nokkuð betri en árangur með C.M.I., en í þessari rannsókn er svo ekki, heldur er C.M.I. heldur betri að öllu leyti. Munurinn er þó ekki mikill. 1 athugun þessari kemur fram að þeir tveir heimilislæknar, sem tóku þátt í rann- sókninni vanmeta ábendingar um nauðsyn læknishjálpar við geðsjúkdóma. Af þessu verður engin ályktun dregin um heimilis- lækna almennt, en þó skal tekið fram að báðir heimilislæknarnir, sem hér um ræðir, voru að mati geðlæknanna tveggja áttaðir með betra móti á geðrænum vandamálum sjúklinga sinna. Reynst gæti gagnlegt fyrir heimilislækni að láta sjúkling fylla út ann- an hvorn spurningalistann, t.d. C.M.I. og at- huga þá sjúklinga sérstaklega, m.t.t. geð- sjúkdóms er hafa 8 eða fleiri jákvæð svör. SUMMARY The psychiatric (M-R) section of the Cornell Medical Index Health Questionnaire (CMI) and the 30-item General Health Questionnaire (GHQ) have been validated against the cri- terior of a psychiatric evaluation in a group of patients coming to a general practitioner. The misclassification rate for CMI is lowest at the threshold score of 7/8 (18.5%) and for GHQ at 2/3 (20.7%). Specificity and sensitivity were above 76% at these threshold scores. The mis- classification ráte is higher for women and for those who are misclassified by the other questionnaire. HEIMILDIR 1. Brodman, K., Erdman, A.J., Wolff, H.G.: Cornell Medical Index Health Questionnaire Manual. Cornell University Medical College, New York, 1949. 2. Goldberg, D.: The detection of psychiatric illness by questionnaire. Oxford University Press, London, 1972. 3. Helgason, T.: Prevalence and incidence of mental disorders estimated by a health questionnaire and a psychiatric case register. Acta Psychiat. Scand. 1978, 58:256-266. 4. Wing, J.K., Cooper, J.E. & Sartorius, N.: Measurement and classification of psychia- tric symptoms. Cambridge University Press, London, 1974. 5. Wing, J.K., Mann, S.A., Leff, J.P. & Nixon, J.M.: The concept of a „case“ in psychiatric population surveys. Psychological medicine, 1978, 8:203-217. 6. Wing, J.K.: Methological issues in psychia- tric case-identification. Psychological medi- cine, 1980, 10:5-10. 7. Tarnepolsky, A., Hand, D.J., McLean, E.K., Roberts, H. & Wiggins, R.D.: Validity and uses of a screening questionnaire (GHQ) in the community. Brit. J. Psychiat. 1979, 134: 508-15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.