Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Síða 38

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Síða 38
36 Hjalti Þórarinsson, prófessor KRABBAMEIN I LUNGUM Á ISLANDI 1931—1974. Árangur skurðaðgerða 1955—1974 INNGANGUR Skurðaðgerðir vegna lungnakrabbameins (Carcinoma bronchiogenis) hófust hér á landi eftir að brjóstholsaðgerðir voru teknar upp á Landspítalanum árið 1955. Á þeim tíma var krabbamein í lungum fátíður sjúk- dómur hér á landi, en tíðni sjúkdómsins var þá þegar í verulegri aukningu í ýmsum lönd- um, einkum þó Bretlandi og Bandaríkjum Norður Ameriku. Krabbameinsskráning á vegum Krabbameinsfélags Islands hófst 1955 og hefur verið stuðst við gögn þeirrar stofnunar. Markmið þessarar greinar er að kynna rannsóknir á tíðni og hegðun sjúk- dómsins hér á landi og árangur þeirra skurð- aðgerða er framkvæmdar hafa verið gegn honum. RANNSÓKNIR OG EFNIVIÐUR Á árabilinu 1931—1974 voru skráðir 464 sjúklingar með frumæxli í lungum á íslandi, þar af aðeins 34 á árabilinu 1931—1954. Eftir það verður veruleg aukning á tíðni sjúk- dómsins og eru skráðir 156 sjúklingar á ára- TABLE I. CARCINOMA OF THE LUNG IN ICELAND ALL CASES 1931 - 1974 MEN W0MEN TOTAL SEX RATIO 1931-1954 25 9 34 2.8 : 1 1955-1964 106 50 156 2.1 : 1 1965-1974 166 108 274 1.5 : 1 TOTAL 297 167 464 1.8 : 1 Allmargir þessara sjúklinga hafa vistast á öðr- um sjúkrahúsum og nokkrar aðgerðir voru framkvæmdar á Borgarspítalanum. Yfirlækn- um viðkomandi sjúkrahúsa eða deilda þakka ég greiðan aðgang að sjúkraskrám og öðrum upp- lýsingum, starfsfólki krabbameinsskráningar þakka ég aðstoð og aðgang að gögnum. tugnum 1955—1964, en 274 árin 1965—1974, sbr. töflu 1. Á því tuttugu ára tímabili, sem skurðað- gerðir spanna, er þvi um að ræða 430 sjúk- linga, sem gerð verða skil í þessari grein og fjallað um afdrif þeirra. Athugaðar hafa verið sjúkraskrár allra þessara sjúklinga og krufningsskýrslur þeirra, sem eru dánir. Kannaðar voru reykingavenjur sjúklinganna með tilliti til þess, hvort fylgni væri milli aukinnar eða mikillar tóbaksneyslu og vax- andi tiðni sjúkdómsins. Nokkuð verður fjall- að um einkenni sjúkdómsins, lítillega drepið á sögu lungnaskurðaðgerða vegna krabba- meins og skýrt frá skammtíma- og langtíma árangri þeirra aðgerða er framkvæmdar hafa verið á Islandi. Þá verður fjallað um vefjafræðilega flokkun æxlanna hér á landi, sem hefur verið endurskoðuð og endurmetin af sama sjúkdómafræðingi (J.H.). NIÐURSTAÐA Krabbamein í lungum var mjög sjaldgæf- ur sjúkdómur um síðustu aldamót og hvergi algengara en 2—4% illkynjaðra æxla.1 Enda þótt tiðnin hafi aukist verulega hér á landi þá er þó um mun meiri aukningu að ræða í ýmsum öðrum löndum. Töflur 2 og 3 sýna tíðnina eftir aldursflokkum hjá báðum kynj- um. Samkvæmt krabbameinsskráningu Krabbameinsfélags Islands 19712 var lungna- krabbamein þriðja algengasta illkynja æxlið hjá körlum (6.7%), en níunda algengasta meðal kvenna (3.8%). 1 grein Ochsners et al3 kemur fram að tiðni þessa sjúkdóms í Massachusettsfylki jókst úr 3.08 per 100.000 íbúa árið 1930 í 42.16 á árinu 1955. Frá 1931—1950 var aukning lungnakrabba- meins í New York fylki 385% hjá körlum og 68% meðal kvenna. Á sama tima fjölgaði öðrum krabbameinum þar aðeins um 2% hjá körlum, en fækkaði um 15% hjá konum. í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.