Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Page 65
63
lingur alls 173 einingar (u.þ.b. 200— 300 ml.)
af plasma, samanber Evansformúlu. Auk
þess fengu allmargir albumin 20% í miklu
magni. Blóðgjöf fengu 10 sjúklingar, alls
103 einingar þar af einn sjúklingur 77 ein-
ingar, en sá sjúklingur gekkst undir 16 að-
gerðir á timabilinu.
Aðgerðirnar voru: hreinsun (brottnám á
brenndum vef), brunaskiptingar og húð-
flutningur. Við aðgerðirnar, einkum meiri-
háttar brottnám á brenndum vef, verður all-
mikið blóðtap. Um meðferð á sjálfum bruna-
sárunum vísast til greinar sem mun birtast í
Læknablaðinu.1
Fyrirbyggjandi fúkalyfjagjöf er mjög
umdeild. Algengast mun þó vera að gefa
fúkalyf í einhverri mynd við stærri og
meðalstóra brunaáverka til að fyrirbyggja
sýkingu. Flestir þeir sjúklingar sem lagðir
voru á gjörgæzludeild Landspítalans fengu
penicillin,
Einnig er venja að gefa fyrirbyggjandi
skammt af stífkrampabóluefni. Að öðru leyti
eru sýklalyf gefin samkvæmt ræktunarnið-
urstöðum og næmisprófum.
FYLGIKVILLAR. Lost: Hættan á losti er
mest fyrsta sólarhringinn vegna hins gifur-
lega vökvataps í vefjum og uppgufunar.
Sársauki og súrefnisskortur hafa án efa
mjög mikla þýðingu. Á seinni árum tekst
þó oft.ast að komast fyrir þetta skeið með
ríkulegri vökvagjöf. Til þess að fyrirbyggja
lost þarf að fylgjast nákvæmlega með púls,
blóðþrýstingi og þrýstingi i miðbláæðum
(CVÞ) svo og þvagútskilnaði og hitastigi i
herbergi.
Af 38 sjúklingum fóru 6 í lost, 2 voru í
losti við komu á deildina, en hinir fóru í
lost skömmu fyrir andlát.
Einn sjúklingur fékk hjartastopp á þriðja
degi og var endurlífgaður.
Honum hafði verið bjargað rænulitlum úr
húsbruna og við barkaþræðingu sogaðist
mikið magn af slími og sóti í barka og berkj-
um og heilsaðist honum eðlilega eftir það.
Meðverkandi orsakir til hjartastopps eru
án efa lækkun á súrefnisþrýstingi i blóði,
svo og meiriháttar truflanir á electrolytum.
SýJcingar: Á seinni árum eru sýkingar víða
algengasta dánarorsök brunasjúklinga. Mik-
ið af dauðum vef er ákjósanlegt æti fyrir
sýkla. í sjúklingahópnum hefur ræktast frá
blóði hjá 5 sjúklingum og 3 þeirra fengu
lungnabólgu. Sýklalyfjagjöf var hagað eftir
næmisprófum.
Anuri — oliguri: Margar samverkandi or-
sakir leiða til nýrnabilunar og má þar
nefna: súrefnisskort, minnkað blóðmagn,
öndunarbilun, eitrun og sýkingar, auk áður-
nefndra truflana í blóði.
Aðeins einn sjúklingur fékk oliguri á síð-
asta sólarhring fyrir andlát, en þeir sem dóu
höfðu yfirleitt anuri á síðustu klukkustund
fyrir andlát.
Reynsla annarra sýnir, að nýrnabilunar
verður vart hjá brunasjúklingum án þess að
um oliguri sé að ræða.2
Blóðsíun hefur verið reynd við nýrnabilun
hjá brunasjúklingum en aðeins borið árang-
ur i örfáum tilfellum.2
BlœÖingartillineiging: Við stærri bruna-
áverka eins og aðra meiriháttar áverka verð-
ur oft vart blóðflögufæðar og aukningar á
niðurbrotsefnum fibrinogens og þar af leið-
andi aukinnar blæðingartilhneigingar. Blóð-
flögufæðar varð vart hjá 5 sjúklingum
(13%) og var þar um að ræða stærstu
brunaáverkana. Ekki varð vart við dissemin-
eraða intravasculera coagulation (DIC) hjá
neinum sjúklinganna.
Magasár: Magasári, svokölluðu Curlings-
sári, hefur verið lýst hjá allt að 16% sjúk-
linga.0 Sumir telja að í u.þ.b. helmingi til-
fella af blæðandi magasárum sé jafnframt
blóðsýking (sepsis) fyrir hendi.
Ekki er óalgengt að vart verði blæðandi
magasára í svæfingu.6 Dánartíðni eftir að-
gerðir á magasárum brunasjúklinga er mjög
há eða allt að 80%.° I seinni tíð hefur verið
gefin fyrirbyggjandi meðferð gegn maga-
sári með því að gefa Tagamet (R), t.d. 400
mg. i.v. á 6 klukkustunda fresti.
AÖrir fylgikvillar: Af öðrum fylgikvillum
TAFLA VI. Fylgikvillar.
Anuri 0
Oliguri (undir 400 ml/24 klst.) 1
Lost 6
Hjartastopp 1
Sepsis 5
Lungnabólga 3
Hb undir 9 g% 3
Thrombocytopenia 5
DIC 0
Serum kreatinine yfir 1.5 4
__Serum protein undir 5 g% 7