Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Blaðsíða 66
64
má nefna skyndilegar blóðþrýstingshækk-
anir (hypertensivar krisur), truflanir frá
miðtaugakerfi, svo sem ofskynjanir, per-
sónuleikabreytingar, delerium tremens,
krampa og dá. Orsakir eru í mörgum tilfell-
um taldar vera súrefnisskortur og/eða trufl-
un á söltum og blóðmagni.
SJÚKRASÖGUR
Sjúkrasaga 1: 27 ára karlmaður lenti í hús-
bruna og er við komu meðvitundarlítill, talinn
vera brunninn að 35% af yfirborði, aðallega Þó
á efri hluta líkamans og andliti. 1 byrjun fær
sjúklingur vökvameðferð á legudeild. Eftir 2
sólarhringa versnar sjúklingi, öndun er veikluð,
púls vart finnanlegur og sjáöldur misstór. Eftir
barkaþræðingu er sogað mikið slím og sót frá
barka og berkjum. Sjúklingur er hafður áfram
með barkaslöngu en þarfnast ekki öndunarvéi-
ar. Næstu 2 sólarhringana er ástand batnandi,
en síðan fær sjúklingur oliguri. Á tíunda degi
eftir innlögn á gjörgæzludeild er sjúklingur
með nýrnabilun og öndunarbilun, og settur í
öndunarvél, en án árangurs.
Dánarorsök samkvæmt krufningu: Embolia
pulm.
Sjúkrasaga 2: 26 ára karlmaður, lagður á
gjörgæzludeiid 2 sólarhringum eftir slys á hafi
úti. Hann hafði brennst á heitri gufu, áætlað
90% af yfirborði. Við komu með meðvitund,
mjög þurr. Hann fær vökvameðferð. Röntgen-
mynd af lungum tveimur dögum eftir komu
sýnir lungnabjúg þrátt fyrir lágan bláæða-
þrýsting (CVÞ). Hann svarar meðferð vel. Á
sjöunda degi aftur lungnabjúgur og þá settur í
öndunarvél. Á áttunda degi þverrandi þvagút-
skilnaður þrátt fyrir meðferð og blóðræktanir
verða jákvæðar. Á tíunda degi mors.
Dánarorsök samkvæmt krufningu: Broncho-
pneumoni.
Sjúkrasaga 3: 66 ára karlmaður, öryrki
vegna helftarlömunar, innlagður á gjörgæzlu-
deild með 35% brunaáverka eftir að kviknað
hafði i rúmfötum. Bruninn var staðsettur á
handleggjum, hálsi, andliti og brjóstvegg ofan-
verðum. Sjúklingur fær i byrjun vökvameð-
ferð, þ.e.a.s. blóð, plasma, salt- og sykurlausnir.
Sjúklingur hefur til að byrja með góðan Þvag-
útskilnað, en tveim dögum siðar fer hann
þverrandi og sjúklingurinn fær hraða öndun,
pC02 18. Á þriðja degi er sjúklingurinn settur
í öndunarvél vegna lélegra blóðgasgilda og
röntgenmynd af lungum sýnir lungnabjúg.
Dánarorsök: Nýrnabilun (skemmdir í þekju-
frumum tubuli).
NIÐURSTAÐA
Á síðasta áratug hafa menn i sívaxandi
mæli gert sér ljóst mikilvægi þess að bruna-
áverkar séu teknir til meðferðar á sem
fæstum sjúkrahúsum.
Þanníg hafa verið stofnaðar sérhæfðai
deildir eða sjúkrahús, sem taka á móti sjúk-
lingum með brunaáverka frá stórum lands-
svæðum, nefna má Norðurlönd og Banda-
ríkin.7 Með aukinni sérhæfingu hefur árang-
ur af meðferð farið stöðugt batnandi. Hér á
landi hefur Landspítalinn gegnt iþessu hlut-
verki.
Rétt þykir að leggja á gjörgæzludeild þá
sjúklinga, fullorðna, ,sem hafa yfir 20% af
yfirborði brennt og börn með brennt yfir-
borð 5—10% eða meira, einnig III. stigs
bruna, sem ná yfir meira en 10% af líkams-
yfirborði, svo og bruna í andliti.
Meðferðin krefst náins samstarfs sérfræð-
inga í mörgum greinum læknisfræðinnar og
sérþjálfaðrar hjúkrunar.
Algengustu og hættulegustu fylgikvillar
eru: lost, sýkingar, öndunarbilun og nýrna-
bilun.
Full ástæða er til að fylgjast vel með
hinni öru þróun á meðferð brunasjúklinga í
heiminum í dag.
SUMMARY
A review of 38 patients with thermal injuries
admitted to the I.C.U., Landspítalinn, Reykja-
vik, during the period 1975—1979, distribution
according to age and sex, cause and size of in-
jury. The main factors in pathophysiology,
treatment and complications are discussed. The
mortality rate wais 9.7%, 4 patients out of 41
admissions.
HEIMILDIR
1. Björnsson, Árni og Thorgrimsson, Sigurður,
grein í handriti. Brunasjúklinga á Land-
spítalanum á árunum 1964—1974. Fyrri
grein.
2. Dewies, D.M., Pusey, C.D., Rainford, D.J.,
Brown, J.M., and Bennett, J.P. Acute renal
failure in burns. Scandinavian Joumal of
Plastic Reconstructive Surgery 13:189-192,
1979.
3. Hedley, John M.D. et al.: Applied physio-
logy of respiratory Care. Kafli 16.
4. Liljedahl, S.O., Larnke, L.O., Jonsson, C.E.,
Nordström, H. and Nylén B.: Warm dry
air treatment of 345 patients with burns
exceeding 20% of the body surface. Scandi-
navian Journal of Piastic Reconstructive
Surgery. 13:205-210, 1979.
5. Mongrief, John A. M.D.: Medical Progress,
New England Journal of Medicine. March
1, 1973, 444-454.
6. Stanislaw, Szyfelbein: 1979 Annual refres-
her course lecture. American Society of
Anaesthesiologists.
7. Stem, Myles and Waisbren, Burton A.:
Comparison of methods of predicting burn