Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Blaðsíða 54
í töflum 5.6-5.10 er hlutfallsleg skipting einkaneyslu í nokkrum löndum OECD tekin sem dæmi
um þennan mismun 1973, 1980, 1983 og 1986-1987. Við samanburð vekur athygli mismunandi vægi
matvæla eftir löndum. Almennt mætti búast við að fátækari þjóðir verðu hlutfallslega meiru til kaupa á
matvælum og öðrum lífsnauðsynjum. Tölurnar sýna að sú er einnig raunin í flestum tilfellum. Hér á
eftir verða nefnd nokkur dæmi um skiptingu einkaneyslunnar 1987. Til samanburðar eru hlutföll frá
1973 höfð innan sviga.
Matur, drykkjarvara og tóbak er einungis 13.3% (17,3%) neyslunnar í Bandaríkjunum 1987 en
40,2% (42,6%) einkaneyslu í Grykklandi sama ár, þar sem þetta hlutfall er hæst. Til samanburðar eru
matar- og drykkjarvöruútgjöld 22.2% (28,6%) neyslu íslendinga á sama tíma, og annarra Norður-
landaþjóða á bilinu 22,5-24.8% (27,6-29,6%). Af þeim Norðurlandaþjóðum sem hér er gerður
samanburður á verja Finnar stærstum hluta einkaneyslu til matvæla eða 24,8% (29,6%).
Töluverður munur er einnig milli landa á vægi fatnaðar og skófatnaðar í einkaneyslu OECD
landanna. Hæst er hlutfallið 10% (8,8%) á íslandi og 9,5% (12,3%) í Grikklandi 1987. Hlutfall
fatnaðar af einkaneyslu er einungis 5,1% (7,2%) í Finnlandi þar sem hlutfallið er lægst. Hlutfallslegt
vægi fatnaðarins hefur minnkað í samanburðarlöndunum öllum nema á íslandi og í Svíþjóð. í þessum
tveimur löndum er hlutfallið óbreytt frá 1973.
Einkaneysla í nokkrum OECD löndum 1987.
Hlutfallsleg skipting.
Banda- Ástra- Frakk- Þýska- Grikk- Sví- Dan- Finn-
ríkin Japan lía land land land Island Noregur þjóð mörk land Spánn
Matur.drykkjarvara og tóbak............ 13.3 20.9 21.9 20.1 22.3 40.2 22.2 24.6 22.5 22.6 24.8 27.9
Fatnaður................................ 6.5 6.2 6.7 7.0 8.8 9.5 10.0 7.1 7.5 5.8 5.1 7.9
Húsnæði.ljósoghiti..................... 19.5 18.7 20.3 18.9 20.6 11.9 13.2 17.0 25.2 26.6 17.5 15.3
Húsgögn.húsbúnaður,
heimilishaldoghcimilistæki.............. 5.7 5.5 7.5 8.3 9.2 8.7 10.7 7.8 6.6 6.6 7.3 7.6
Lyfoglæknishjálp....................... 14.7 10.7 7.0 8.9 3.2 4.1 1.6 3.8 2.5 1.8 3.7 3.8
Flutningatækiogsamgöngur............... 14.8 9.4 13.5 16.8 15.9 13.6 17.9 15.5 17.3 16.7 17.8 15.8
Tómstundaiðja.skcmmtanir,
menntunogmenningarmál................... 9.6 10.1 9.0 7.3 9.9 6.8 8.2 8.4 9.9 9.6 10.2 7.0
Ýmsar vörur og þjónusta................ 15.5 17.8 14.2 13.4 8.6 10.6 12.5 11.4 6.2 10.4 12.2 21.6
Einkaneyslainnanlandsalls.............. 99.5 99.4 100.0 100.6 98.4 105.4 96.2 95.7 97.9 100.0 98.5 107.0
Við bætist: Útgjöldcrlendis ............ 1.0 0.8 1.8 1.5 4.2 1.6 6.5 7.3 4.7 5.1 3.3 1.2
Frádregst: Útgjöldútlendinga............ 0.6 0.2 1.9 2.1 2.6 7.0 2.7 3.1 2.6 5.1 1.8 8.2
Einkancysla alls 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0
Hlutfall húsnæðis, ljóss og hita er afar breytilegt á bilinu 13-27% einkaneyslunnar 1987. Hæst er
þetta hlutfall hjá Dönum, eða 26,6% (20,5%), en Svíar koma næstir með 25,2% (22,2%). Lægst er
hlutfall húsnæðiskostnaðarins 11,9% (13,6%) í Grikklandi og 13,2% (17%) á íslandi 1987. Til
samanburðar var húsnæðiskostnaður á íslandi, sem hlutfall af einkaneyslu 14,9% 1986.
Er þetta þriðja lægsta hlutfall í samanburðarlöndunum 1986. Einungis Grikkland og Portúgal eru
með lægra hlutfall, Portúgal raunar lang lægst 5,2% 1986. Tölur um hlut húsnæðis í Portúgal 1987 liggja
ekki fyrir.
Ástæðurfyrirþvíað hlutfallhúsnæðisinsáíslandi ermeðþvílægstasem þekkisterm.a. tiltölulega
lágt hlutfall ljóss og hita. Hlutfall ljóss og hita 1987 er 2,4% (3,3%) einkaneyslunnar á íslandi en
algengt hlutfall er á bilinu 3,3-6,9% 1987, hæst í Danmörku 6,9% (4,7%). Einungis Ástralir búa við
lægra hlutfall ljóss og hita en íslendingar 1987, 2,3% (2,0%).
Vægi húsgagna, húsbúnaðar, heimilishalds og heimilistækja hefur víðast hvar farið minnkandi
undanfarin ár. Sömuleiðis er minni munur milli landa á þessum þætti einkaneyslunnar en á hlutfalli
matvæla, fatnaðarog húsnæðis. Hæsturer þessi liður á íslandi 10,7% (11,6%) af einkaneyslu 1987, en
lægstur 5,5% (7,8%) í Japan. Af Norðurlöndunum eyða Svíar og Danir minnstu í þennan lið, 6,6%
(7,5% og 9,4%) 1987, en Noregur og Finnland 7,8% (8,9%) og 7,3% (7,5%). Ef tekið er til
samanburðar hlutfall frá 1986 voru íslendingar einnig í fyrsta sæti með 10,1% af einkaneyslunni í
52