Sagnir - 01.06.2003, Side 8

Sagnir - 01.06.2003, Side 8
♦ ♦♦♦♦♦♦♦ Bergsteinn Sigurðsson ♦ ♦♦♦♦♦♦♦ Bergsteinn Sigurðsson er fæddur árið 1979. Hann útskrifaðist með BA próf í sagnfræði og stjómmálafræði haustið 2002. Þegar kvikmyndin komst á legg Upphaf íslenska kvikmyndavorsins Latid og syttirvar frumsýnd í janúar 1980 fyrst myndanna sem styrk höfðu hlotið úr Kvikmyndasjóði. I byrjuti 9. áratugar 20. aldar varfarið að skírskota til loftlagsbreytinga til að lýsa því ástandi sem hafði skapast í islenskri kvikmyndagerð; það var komið vor.1 Þegar árið 1981 var Erlendur Sveinsson, kvikmyndagcrðarmaður, búinn að negla niður ttpphaf þess, sem var að hans mati fyrsta úthlutun nýstofnaðs Kvikmyndasjóðs árið 1979 en með því „voru sköpuð þau skilyrði, sem geta gert íslenskri kvikmyndagerð kleift að vaxa úrgrasi. “2 Fljótt á litið er ekki crjitt að taka undir þessa fullyrðingu Erlendar því á þessum tíma var mikill uppgangur í íslenskri kvikmyndagerð; Kvikmyndasafn íslands liafði verið stofnað árið 1978 ásamt Kvikmyndasjóðnum, fyrsta kvikmyndahátið íslands var haldin sama ár og þrjár leiknar kvikmyndir ífullri lengd vorti fratnleiddar eftirfyrstu úthlutun sjóðsins. Síðan þá hefur upphaf kvikmyndavorsins oftar en ekki verið tengt við stofnun ogfyrstu útlilutun Kvikmyndasjóðs íslands. Sumum þykir lítið gert úr kvikmyndasögu okkarfyrstu sjö áratugi hennar eða svo,3 en það er Ijóst að íslensk kvikmyndasaga hefurfrá því á 8. áratugnum fetigið að líða nokkurn vegittn óáreitt af sagnfræðingutn. Það sést til dæmis þegar greinasaftiið Heitnur kvikmyndanna, setn kom iit árið 1999, er skoðað en þar eru á þriðja tug greina semfjalla um íslenska kvikmyndagerð. Innan við helmingur þeirrafjalla utn kvikmyndamenningu íslendinga eftir 1979 ogfæstar þeirra hvíla á sagnfræðilegum grunni. Af þessutn sökum hafa meðal annars fullyrðingar eins og að hérlendis hafi íslenskt kvikmyndavor hafist með stofnun Kvikmyndasjóðs Islatids, fengið aðJljóta um i friði. Hér verður katinað hvort þessi fullyrðing standist nánari skoðun.

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.