Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Side 22
HÚSNÆÐISMÁL
Hróbjartur Hróbjartsson, arkitekt:
Seljahlíd—vistheimili og
íbúðir aldraðra í Reykjavík
Undirbúningur
Árið 1981 ákvaö borgarstjórn
Reykjavíkur aö hefja undirbúning
framkvæmda viö gerð vistheimilis,
hjúkrunarheimilis og heilsugæzlu-
stöðvar, sem rísa skyldu í einu
yngsta hverfi borgarinnar í Breið-
holti. Byggt skyldi í námunda viö
skóla, fyrirhugaðar verzlanir,
kirkju og fleiri stofnanir í Selja-
hverfi. Eftir að undirbúningi og
uppdráttum haföi miðaö vel á veg,
reyndist nauðsynlegt aö endur-
skoða upprunalegar áætlanir. Ekki
var unnt að tryggja hina lög-
bundnu þátttöku ríkissjóðs við
fjármögnun heilsugæzlustöðvar
og hjúkrunarheimilis innan rými-
legs frests.
Ákveðið var árið 1983 að byggja
aðeins vistheimili með þjónustu-
miðstöð auk söluíbúða í sérstæð-
um húsum.
Hönnun
Vandi okkar arkitektanna var í
fyrstu sá, að byggja skyldi tiltölu-
lega stórar byggingar í íbúða-
hverfi, þar sem mest bar á einbýl-
ishúsum. Lóðin var ekki ýkja stór,
svo að augljóslega yrði að gera
ráð fyrir þriggja hæða húsi fyrir
vistheimilið. Þá var og þess að
gæta að draga sem mest úr áhrif-
um þess, að um stofnun væri að
ræða. Eins og sjá má hér á mynd-
unum, fólst lausnin í því að skipta
húsunum í minni einingar með ris-
þökum. Hið innra vildum við móta
þannig, að íbúarnir hefðu fremur á
tilfinningu, að þeir byggju á góðu
hóteli en á vist.
íbúðir
( vistheimilinu eru 60 einstakl-
ingsíbúðir, sem eru 28 fm að
Greinarhöfundur, sem ásamt Sigurdi
Björgúlfssyni, arkitekt, teiknaði
Seijahiíð.
stærð, og 10 hjónaíbúðir, sem eru
um 54 fm að stærð. I hverri íbúð er
flísalagt baðherbergi með salerni,
handlaug og steypibaði, ennfrem-
ur fataskápar og lítill eldhúsbekkur
með vaski og kæliskáp. Þá. eru á
íbúðunum franskar svalir, sem svo
er kallað. Lokuð geymsla fylgir
hverri íbúð. í einnar hæðar par-
húsum eru 18 tveggja herbergja
sérbýlisíbúðir. Reykjavíkurborg
hefur selt parhúsaíbúðirnar sam-
kvæmt sérstökum skilmálum, sem
Húsinu er skipt í einingar svo það virðist minna en ella. Veitingasalur. Um dyr til vinstri má ganga út á garðstétt.
Gluggar milli ,,húsa" veita birtu á ganga.
68 SVEITARSTJÓRNARMÁL