Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Blaðsíða 23

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Blaðsíða 23
HÚSNÆÐISMÁL Vistheimilid og nokkur parhúsanna. Útbrotagtuggar veita útsýni i þrjár áttir úr íbúöum vistheimilisins. tryggja, aö í þeim búi ávallt aldrað- ir Reykvíkingar. Auk herbergjanna tveggja er eldhús meö borðkrók, forstofa, flísalagt baðherbergi og geymsla. Þjónusta í vistheimilinu eru rými til þess að veita eftirtalda þjónustu: Veit- ingasalur fyrir um 100 manns í sæti. Eldhús í fullri stærð til að þjóna allt að 200 manns til borðs eða með útsendingu. Föndur- og samkomusalur fyrir allt að 120 manns, heilsuræktarsalur, ker- laug, sjúkrabað, verkstæði til smiða o.fl., hárgreiðslustofa, fót- snyrtistofa, verzlun og þvottahús. Þá eru einnig setustofa og set- krókar. Allir íbúarnir njóta öryggisþjón- ustu frá þjónustumiðstöð, en þangað er hægt að kalla frá hverri íbúð. Þátttaka í félagsstarfi og tómstundastarfi, sem fram fer í húsinu, er frjáls og án kostnaðar fyrir þátttakendur. Fyrir íbúa vist- heimilisins er öll þjónusta innifalin í því gjaldi, sem menn greiða í gegnum tryggingakerfið, en íbúar sérbýlisíbúðanna í parhúsunum eiga kost á að kaupa mat, þvott, hárgreiðslu, fótsnyrtingu, böðun, líkamsþjálfun og afnot af kerlaug. Byggingarefni Vistheimilið er steypt upp á staðnum í stórvirk mót, en parhús- in eru úr aðfluttum steyptum ein- ingum. í vistheimilinu eru létt- byggðir innveggir úr gifs- og spónaplötum á stálgrind, en í par- húsunum hlaðnir og pússaðir veggir. Gólf eru flísalögð í böðum og þ.h. rýmum, en ella korklögð. Viður er Ijós, en þó víða hvítmál- aður. Veggir eru hvítir eða Ijós- brúnir. Lóð er fullfrágengin með gróð- ursetningu og steinlögðum stíg- um. Snjóbræðsla er í stígum að öllum húsum og lóðinni. Stæróir og kostnaóur Vistheimilið er alls 5618 fm að meðtöldum kjallara. Þarhúsaíbúð- irnar eru 69 fm hver. Byggingarkostnaður framreikn- aður til verðlags um mitt ár 1986 var: Vistheimilið um kr. 200.000.000. Búnaður um kr. 26.000.000. Lóð um kr. 10.000.000. Söluíbúðirnar um kr. 3.200.000 á hverja íbúð. Hugleióingar Við að ganga með slíkt verk í maganum um 5 ára skeið koma upp fjölbreytilegar vangaveltur og SVEITARSTJÓRNARMÁL 69

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.