Helgafell - 01.06.1942, Page 98

Helgafell - 01.06.1942, Page 98
228 HELGAFELL voru því réttmæt og heilbrigÖ. En þó kom það upp úr dúmum, þegar betur var að gætt, að skáldin gengu feti framar í kveðskap sínum að þessu leyti en kenningin gaf efni til. Shake- speare, Milton og Wordsworth höfðu ort um stjórnmál sem skáld. ,,Vinstri skáldin“ þrjú tóku sér hins vegar fyr- ir hendur að fjalla um skáldleg efni sem stjórnmálamenn. Þeir túlkuðu, með öðrum orðum, ekki stjórnmálin á skáldlegan hátt, heldur freistuðu að gera grein fyrir einu og öllu, sam- kvæmt félagslegum og stjórnarfars- legum rökum. Ást og hatur, trú og von, allt, sem nöfnum tjáir að nefna, hlaut að ákvarðast af stjórnmálum eða rekja þangað rætur. Stjórnmálin urðu á þennan hátt veruleikinn á bak við veruleikann, öxull mannlífsins. Þau tóku til alls, og allt var undir þeim komið, en sjálf voru þau yfir allt hafin. En meginkostur þessarar skoðunar var þó sá, samkvæmt marxiskum skilningi, að hún brá ljósi yfir kynnst- ur af huldum dómum. Kenning Marx var þeim furðulegu og heillandi eig- inleikum búin, að hún gerði grein fyr- ir ótölulegum fjölda fyrirbrigða af margvíslegasta tagi: rás sögulegra at- burða, bókmenntastefnum, háttum siðaðra þjóða og frumstæðra, uppruna og þróun fjölskyldulífsins, jafnvel æv- intýradraumum mannlegrar ástar, á- rekstrum í borgaralegu heimilislífi og taugaveilum miðstéttanna. Á þennan hátt gat rithöfundurinn rennt skyggn- um augum um alla mannheima, eins og örn úr heiði, svo að þar sem áður hafði virzt óskapnaður einn, varð nú sýnn tilgangur og skipulag. Allt lá ljóst fyrir, þegar mönnum hafði skil- izt, í eitt skipti fyrir öll, að rás sögu- legra atburða var rökbundin, að stéttabarátta var óhjákvæmileg nauð- syn og liður í þróun lífsins, — að sér- hver mannleg athöfn var, þegar að var gætt, háð hagkerfi samfélagsins. Þetta var skilrík og áfeng lífsspeki, en kuldaleg samt sem áður, því að hún tók ekki til mannsins sem einstakl- ings, heldur aðeins sem múgveru. Nú hlýtur hver sú kenning, sem boðuð er múgverum, að vera áróður í eðli sínu, og ,,stjórnmálaskáldin“ voru því í fyrstu hikandi gagnvart því vandamáli, hvort beita skyldi ljóðlist- inni í áróðursskyni. Þau voru þeirrar skoðunar, að slíkt ætti ekki að gera, ljóðlistin hefði æðra hlutverki að gegna en áróður, henni bæri að sinna túlkun veruleikans einni og ómeng- aðri. Þó gat þeim ekki dulizt, að sú tegund lífstúlkunar, sem þeir boðuðu, skýring Marxismans, var áróðurskynj- uð í eðli sínu, því að það var einmitt sérkenni hennar, að hún var ekki að- eins skýring á sögulegri rás umliðinna atburða, heldur og leiðarvísir um þá stefnu, er sagan átti að taka um ó- komin ár. Hún var því í raun réttri mannlífsfræði og dagskipan í senn. Marxisminn taldi sér það einmitt til gildis, að þar væri ekki um neina við- urkenningu að ræða á misræmi milli fræðireglu og framkvæmdar. Athöfn er eina sönnun kenningar, var eitt af kjörorðum hans. Skáldleg lífstúlkun, er sprottin var af heimspeki Marxism- ans, hlaut því að verða áróðursborin, hversu samvizkusamlega, sem skáld- in reyndu að sigla fyrir það sker. Slíkur skáldskapur hafði það ætlun- arverk að orka á múginn, en ekki á einstaklinginn — nema sem hluta úr heild. Hér kemur fram sá greinar- munur, sem er á list og áróðri, laus- lega að orði komizt. Það er ekki áróð- ur að reyna að gera menn mildari, vitr- ari eða jafnvel félagslyndari. Hitt er áróður að hvetja menn til að ganga í einhvern mannúðarfélagsskap, menn- ingarsamtök eða stjórnmálaflokk. Báðar þessar fortöluaðferðir geta leitt til góðs, en árangurinn af þeim báð- um verður ekki sama eðlis. Fyrir þeim Day Lewis, Auden og Spender vakti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.