Helgafell - 01.12.1955, Page 52
50
HELGAFELL
Þá sneri ég við og ég lagði mér leið
til lífsins í fjölskyldu bœnum.
En þrána til skýja á reiðanum rak
t röst út i veraldar sœnum.
t•
Þig brast ekki gáfur að velja þér veg,
en vilja og úrslitaþrekið. —
Er örlög þtn gyðjurnar undu upp i hnoð
um endann þú gazt ekki tekið.
★
Á frostkvöldi blœlygnu stóð ég á storð
og starði i œgishjálm nætur, —
og stjörnuhrap leit ég, er stefndi á byggð
við stórbrýnda háfjallsins rætur.
Það heiðskira vetrarkvöld brustu þér brár
við blysför úr hánorðurs vegi.
Þar gusu upp logar i gerningadýrð
úr glóðum frá umliðnum degi.
í hjálmskúfum síðum var hrynjandi gull,
sem hristist í bláloftsins iðu,
er stjörnugljá vetrarins stálkulda leið
þær stórbrotnu fylkingar riðu.
Sú útlæga, hátigna, ófrjóa dýrð
á einstœðings hátterni bendir,
sem eldingu brúna á öræfi snýr
og ævinni i sjálfan sig hendir.
Við leiði þitt, Brynhildur, minnast þess má,
hve mannkynið flakir i sárum,
— að einstæðings ævi er misfellumörg
sem marinn er fjölsettur bárum.