Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 2

Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gott gengi í svartfuglseggjunum  Súlan er farin að fá makríl við Vestmannaeyjar Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta var mun betra nú en síðustu tvö ár, maður vonar að þetta sé eitthvað að ná sér,“ segir Valur Andersen, bjargmaður í Vestmannaeyjum, um svartfuglavarpið. Hann og félagar hans fóru til eggja í Súlnaskeri, Geirfuglaskeri og Geldungi. „Við erum búnir að fara nokkrar ferðir og þetta hefur verið ágætt. Það var nú meiri fugl í gamla daga og heldur minna varp nú en þá, en samt alveg þokkalegt.“ Sem kunnugt er hafa svartfuglar, þar á meðal lundi, átt örðugt uppdráttar við Suðurland undan- farin sumur. Dræmur viðgangur sandsílis er tal- inn eiga þar hlut að máli. Kenningar eru um að makríllinn éti fæðið frá sandsílinu og vilja lunda- kallarnir helst ekki sjá makrílinn. Valur segir að í síðustu eggjaferðinni hafi þeir orðið varir við að súlan var farin að bera makríl á bælin þannig að hann er kominn sunnan úr höfum. Fuglarnir eiga seinna varpið „Það er nóg af þessu og virkilega gaman að fara í bjargið,“ segir Bjarni Magnússon, fyrrverandi hreppstjóri í Grímsey, um eggjatökuna í vor. Hann segir að vel hafi viðrað til eggjatöku lengst af. Eggjatakan hófst í Grímsey um miðjan mán- uðinn en er nú lokið. Sýna átti ferðamönnum bjargsig í gærkvöldi. „Við tökum aldrei það lengi, fuglarnir eiga alltaf seinna varpið,“ segir Bjarni. Aðallega hirða þeir langvíuegg en álkan er seinni til að hefja varpið. Bjarni segir að fimm til sex úthöld stundi eggja- töku í Grímsey og hefur hvert sinn hluta af björg- unum. Skiptingin fer eftir gömlum jarðamerkjum í eynni. Kiwanismenn settu merkingar við öll fuglabjörgin í Grímsey í fyrra. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Það er svo sem ekkert sem stendur upp á stjórnvöld þarna, ég fagna bara þessari áskorun. Bjarnarflag er í nýtingarflokki í rammaáætlun og það var þáverandi ríkisstjórn og þáverandi um- hverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, sem lagði fram þá tillögu,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra. Hún segist ekki munu beita sér fyrir því að færa umrædda virkjun í Bjarna- flagi úr nýtingarflokki. Landeigendur Reykjahlíðar ehf. í Mývatns- sveit skoruðu í gær á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að nauð- synlegum undirbúningi vegna nýrrar 45 MW gufuaflsvirkjunar í Bjarnarflagi verði lokið og að framkvæmdir hefjist sem fyrst. Ragnheiður Elín minnir á að umhverfismat sé í gildi og hún treysti því og trúi að það taki ríkt tillit til sjónarmiða er varða verndun Mývatns. „Ég sé hvernig Landsvirkjun hefur haldið á málum. Þeir eru búnir að vera í nánu samstarfi og samráði við sér- fræðinga og heimamenn þannig að ég treysti þeim fyllilega til að taka ákvörðun og ég veit að lífríki Mývatns verður ekki teflt í hættu.“ heimirs@mbl.is Ekki breyting í Bjarnar- flagi með nýjum ráðherra  Landeigendur í Mývatnssveit skora á stjórnvöld vegna Bjarnarflags Veikleikar eru í fjárlögum ársins, að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahags- ráðherra. Hann nefnir sér- staklega að fyrri stjórnvöld hafi tekið ákvarðanir sem leiða til auk- inna útgjalda í ár og næstu ár. Þá hafi aðrir liðir verið vanáætlaðir og útlit fyrir að tekjuáætlun gangi ekki eftir. Fjármálaráðherra er að taka saman upplýsingar um stöðuna. Hann kynnti fyrstu niðurstöður á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. „Það stefnir í að staða ríkissjóðs verði umtalsvert lakari en gert hefur ver- ið ráð fyrir, ef ekkert verður að gert,“ segir Bjarni við Morgun- blaðið. Hann segist ekki geta skýrt frá einstökum liðum á þessari stundu eða fráviki í heildina en reiknar með að gera það fljótlega. Ráðherrar bregðist við Bjarni segist gera einstökum ráðuneytum grein fyrir helstu nið- urstöðum. Tilgangurinn sé að þau hafi ráðrúm til að bregðast við í tíma. Hann reiknar með að ráð- herrar viðkomandi málaflokka komi með tillögur um það hvernig bregð- ast megi við hallarekstrinum. Þótt Bjarni tjái sig ekki um ein- staka liði segir hann að vitaskuld komi til greina að endurskoða ein- stök verkefni, ef þau hafi verið ákveðin við aðrar aðstæður en nú séu uppi, og forgangsraða í sam- ræmi við áherslur í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar. Útgjöld vegna lánsveða Meðal þeirra mála sem til athug- unar eru, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, er sameiginleg viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Landssamtaka lífeyrissjóða um að- gerðir í þágu yfirveðsettra heimila með lánsveð til íbúðarkaupa. Hún mun hafa veruleg áhrif á útgjöld ríkissjóðs, komi hún til fram- kvæmda á þann hátt sem samið var um. Þá mun stefna í að útgjöld til sjúkratrygginga fari fram úr áætl- un, eins og oft áður. helgi@mbl.is Lakari staða hjá ríkissjóði Bjarni Benediktsson  Ráðherrar þurfa að forgangsraða Þessi glaðlega stúdína fagnaði útskriftardeginum með bros á vör í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Á vordögum má gjarnan sjá nýútskrifaða og stolta stúdenta fagna áfanganum um borg og bý. Flestir skarta þeir hvítu húfunum langþráðu. Kvenna- skólinn útskrifaði stúdenta við hátíðlega athöfn í Hallgrímskirkju í gærdag en framhaldsskólar á borð við Verslunarskólann, Menntaskólann við Hamrahlíð og Flensborgarskólann útskrifuðu nemendur um síðustu helgi. Glöð út í lífið með húfuna hvítu Morgunblaðið/Eggert Brosin ráða ríkjum í sumarbyrjun Jarðhitasvæðið í Bjarnarflagi er í landi Reykjahlíðar og landeigendur Reykja- hlíðar ehf. benda á að nú sé stefnt að því að reisa 45 MW virkjun í Bjarnar- flagi sem sé helmingi minna orkuver en Skipulagsstofnun miðaði við í úrskurði sínum. Í úrskurði sínum um mat á um- hverfisáhrifum árið 2004 féllst Skipu- lagsstofnun á nýja virkjun í Bjarnar- flagi með allt að 90 MW framleiðslu- getu, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að því er segir í áskorun landeigenda. Minna á matið ÁÐUR STEFNT AÐ STÆRRI VIRKJUN Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Kæli- og frystiskápar Quality, Design and Innovation 25% afsláttur Staða mála vegna ótíðar á Norður- og Austurlandi í vetur og vor var rædd á fundi í at- vinnuvega- og ný- sköpunarráðu- neytinu í gær. Forsvarsmenn Bændasamtak- anna, Ráðgjafar- miðstöðvar land- búnaðarins og Bjargráðasjóðs kynntu stöðu bænda fyrir fulltrúum ráðuneytisins. Vegna kals í túnum þurfa margir bændur að rækta upp tún sín og sá til grænfóðurs til að reyna að fá ein- hverja uppskeru í haust. Ráðunautar telja að þar sem tjónið er mest geti allt að 90% túna verið ónýt. Ljóst er að bændur þurfa að leggja í mikla vinnu og fjármuni til að laga ræktun sem hefur eyðilagst. Haft er eftir Sindra Sigurgeirssyni, formanni Bændasamtakanna, á vef samtakanna, að Bjargráðasjóður hafi ekki burði til að mæta tjóninu að óbreyttu og að önnur úrræði þurfi til að koma. Sindri sagði að Bændasamtökin myndu vinna að lausn mála með stjórnvöldum því miklir hagsmunir væru í húfi fyrir bændur á stórum svæðum landsins. Ræða um stöðu bænda  Vilja vinna með stjórnvöldum Sindri Sigur- geirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.