Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
hestum í þessum gæðaflokki á sýn-
ingu. Það eru sjálfsagt ekki mörg bú
sem geta það. Við vorum eitt af þeim
og vorum boðin velkomin.“
Fjöldi gæðinga erlendis
Baldvin er þessa dagana að velja
bestu hrossin til að sýna. Fjöldi gæð-
inga frá honum er í keppni og
sýningum erlendis. Baldvin nefnir
Hraunar frá Efri-Rauðalæk sem er
tvöfaldur heimsmeistari frá síðustu
Heimsleikum og Krók bróður hans
sem er margfaldur Norðurlanda-
meistari. Reiknar Baldvin með því að
þeir verði með í baráttunni um efstu
sæti sinna greina á mótinu og vonar
að það rekist ekki á við ræktunarbús-
sýninguna. Því þurfi að hafa vara-
hesta tiltæka. Þá segist hann vera að
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er stærsti auglýsingagluggi
heims fyrir okkar starfsemi. Svona
mót í stórborg eins og Berlín er að
höfða til fólks. Þetta fyrirkomulag er
greinilega framtíðin,“ segir Baldvin
Ari Guðlaugsson á Akureyri. Rækt-
unarbú hans, Efri-Rauðilækur, er eitt
af ellefu búum sem valin hafa verið til
sýningar á Heimsleikum íslenska
hestsins í Berlín í ágúst.
Er þetta í fyrsta skipti sem rækt-
unarbú fá að sýna hross sín á Heims-
leikum. Fyrirmyndin er sótt til
Landsmóta hestamanna hér á landi.
Sýningin verður á föstudagskvöldi
mótsins. Ellefu ræktunarbú voru val-
in. Flest eru þýsk, eða sjö. Eitt er al-
íslenskt, eitt danskt og eitt norskt.
Ellefta búið er þýsk-íslenskt, Sloss-
berg/Kvistir og er Kristjón L. Krist-
jánsson annar af tveimur ræktendum
þess.
„Þetta á sér í sjálfu sér langan að-
draganda því allt snýst um árangur
búsins, bæði á kynbótabrautinni og
ekki síður í almennri keppni. Við höf-
um verið að ná góðum árangri á báð-
um sviðum,“ segir Baldvin Ari um að-
draganda þess að ræktun hans varð
fyrir valinu. „Til að koma til greina
þarf maður að vera með í gangi fjölda
toppgæðinga til að geta náð saman tíu
íhuga að taka með sér eitt eða tvö
hross sérstaklega fyrir þessa sýn-
ingu.
Mikil forvinna
Mikill undirbúningur er fyrir rækt-
unarbússýninguna, fyrir utan það að
útvega hrossin. Þarf að búa til tíu
mínútna sýningu þar sem ákveðið er
hvernig hrossin verða sýnd, tónlist
valin og texti skrifaður fyrir kynni
sýningarinnar. Einnig þarf að útbúa
kynningarefni.
Ræktunarbúin þurfa því að leggja í
verulegan kostnað. Baldvin sér ekki
eftir þeim peningum, segir að þetta sé
markaðsstarf og menn þurfi að vera
tilbúnir að eyða peningum til að afla
peninga. „Ekki er hægt að fá betri
auglýsingu en þetta.“
Stærsti auglýsingagluggi
heims fyrir okkar starfsemi
Sýning Randalín og Rósalín, alsystur frá Efri-Rauðalæk, á Landsmóti 2012.
Baldvin Ari
Guðlaugsson sýnir
ræktunina í Berlín
Ræktunarbú í Berlín
» Efri-Rauðilækur (Baldvin Ari
Guðlaugsson); Forstwald
(Karly Zingsheim); Hrafnsholt
(Samantha Leidesdorff, Her-
bert Ólason); Katulabo (Bo
Hansen); Kranichtal (Sarah
Kuhls); Kringeland (Inge Krin-
geland); Kronshof (Lothar
Schenzel, Frauke Schenzel);
Lindenhof (Andreas Trappe);
Lipperthof (Uli Reber); Schloß-
berg/Kvistir (Günther Weber,
Kristjón L. Kristjánsson; Tölt-
myllan (Nina Engel).
Starfsmenn embættis ríkisskatt-
stjóra eru nær undantekningar-
laust ánægðir með sameiningu
embætta skattstjóra sem ákveðin
var með lögum árið 2009. Í könnun
sem greint er frá í Tíund, frétta-
blaði RSK, kemur fram að 93%
þeirra sem könnunin náði til eru
ánægð með sameininguna eins og
hún hafði verið framkvæmd, og ef
aðeins eru taldir þeir starfmenn
sem tóku afstöðu voru 98% ánægð.
Sameiningin var umfangsmikil
en seint á árinu 2009 var ákveðið að
leggja niður sjálfstæð embætti
skattstjóra og fella störf þeirra
undir ríkisskattstjóra. Gengu þau
áform eftir og með lögum í desem-
ber 2009 var samþykkt að sameina
skattstofur ríkisskattstjóraembætt-
inu frá og með 1. janúar 2010. Þetta
fól m.a. í sér að eftirlitseiningar
voru felldar saman í eina, virðis-
aukaskattur á höfuðborgarsvæðinu
sameinaður á starfsstöðinni í Hafn-
arfirði, símsvörun færð til Norður-
lands, handreikningi stjórnað frá
Egilsstöðum o.s.frv.
Ríkisskattstjóri Skúli Eggert Þórð-
arson. Starfsfólk er ánægt með sam-
einingu skattstjóraembætta og RSK.
Ánægð með
sameiningu